Opið fyrir skráningar.

Taktu þátt í piparkökuhúsasamkeppni Kötlu og Kringlunnar! 🎄

Taktu þátt í piparkökuhúsasamkeppni Kötlu og Kringlunnar! 🎄

Taktu þátt í skemmtilegri piparkökuhúsasamkeppni Kötlu og Kringlunnar og þú gætir unnið KitchenAid hrærivél frá Byggt og búið!

Það er fátt sem vekur upp jafn ljúfar jólaminningar og ilmurinn af nýbökuðum piparkökum, glassúr á fingrunum og gleðin sem fylgir því að skapa eitthvað fallegt saman. En piparkökuhúsabakstur hefur lengi verið kærkominn hluti af jólaundirbúningi fjölskyldna um land allt og nú ætlar Kringlan og Katla að endurvekja þessa fallegu hefð.

Við hvetjum fjölskyldur, vinahópa og öll þau sem hafa gaman af því að skapa til að gefa sér notalega stund saman, leyfa hugmyndafluginu að njóta sín og töfra fram sitt eigið piparkökuhús.

Búðu til þitt eigið piparkökuhús, skreyttu það eftir þínu höfði og skráðu þig til leiks.

Í desember verða piparkökuhús keppenda til sýnis á göngugötu Kringlunnar þar sem gestir geta skoðað þessi fallegu jólaverk.

Keppendur skila inn piparkökuhúsunum sínum á 1. hæð Kringlunnar þann 30. nóvember.

Að sjálfsögðu hvetjum við þátttakendur til að nota Kötlu vörur í piparkökuhúsin sín, Katla er með tilbúið piparkökudeig og glassúr sem aðeins er með náttúrulegum litarefnum. 

Veitt verða vegleg verðlaun fyrir fallegustu piparkökuhúsin og verða vinningshafar kynntir þann 5. desember.

Við hvetjum alla til að taka þátt, jafnt börn sem fullorðna ❤️

Skráningu lýkur 24. nóvember.

Skráning og leikreglur má finna hér: www.kringlan.is/skraning