Skilmálar
1. Almennt
1.1. Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum og þjónustu á vefsvæðinu www.kringlan.is.
1.2. Á vefsvæðinu er að finna vöruleit auk þess sem hægt er að festa kaup á vörum frá verslunum sem eru staðsettar í Kringlunni. Rekstrarfélag Kringlunnar, kt. 500400-2930, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík („hér eftir Kringlan“), heldur úti vefsvæðinu.
1.3. Skilmálar þessir skilgreina réttindi og skyldur Kringlunnar, verslana Kringlunnar og kaupanda vöru og þjónustu.
1.4. Með því að nota vefsíðuna www.kringlan.is samþykkir og viðurkennir viðskiptavinur að hann hafi skilið og samþykkt þessa skilmála.
1.5. Einstaklingum yngri en 18 ára er ekki heimilt að versla á vefsíðu Kringlunnar án leyfis foreldra eða forráðamanna. Greiði einstaklingur yngri en 18 ára fyrir vörur eða þjónustu skal það ekki vera á ábyrgð Kringlunnar að sannreyna aldur þess er greiðir fyrir vörur eða þjónustu á vefsíðu Kringlunnar. Í öllum tilvikum verður farið með pantanir eins og kaupandinn sé fjárráða í afgreiðslu pantana í gegnum vefsíðuna. Kringlan starfar í góðri trú um að notendur vefsíðunnar fari eftir lögræðislögum Íslands. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi fyrirkomulag viðskipta á vefsíðunni www.kringlan.is eða annað í tengslum við vefsíðu Kringlunnar, endilega hafðu samband á netfangið kringlan.is@kringlan.is.
2. Þjónustan
2.1. Á vefsíðunni www.kringlan.is er viðskiptavinum gert kleift að eiga viðskipti með vöru og þjónustu verslana Kringlunnar. Þar velur þú vörur frá mismunandi verslunum, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntun er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfar þess færð þú kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og getur fylgst með stöðu pöntunar.
2.2. Kringlan er ekki endursöluaðili heldur eingöngu milliliður á milli verslunar og viðskiptavinar. Viðskiptavinur getur keypt vörur frá fleiri en einni verslun í einu í gegnum vefsíðu okkar, www.kringlan.is. Viðskiptavinur getur valið um heimsendingu, sækja í póstbox eða sækja í Þjónustuver Kringlunnar, 2.hæð.
2.3. Pantanir í heimsendingu eða póstbox eru sendar frá Kringlunni innan sólarhrings alla virka daga með akstri frá TVG sem keyrir út heimsendingar fyrir Kringluna. Afgreiðsla pantana miðast við 1-2 virka daga frá því að pöntun á sér stað. Á stórum tilboðsdögum getur afgreiðslutími mögulega lengst lítillega.
2.4. Áskilinn er réttur til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra upplýsinga eða breytinga á birgðastöðu. Allar upplýsingar á vefsvæðinu www.kringlan.is eru birtar með fyrirvara um villur og verðbreytingar.
2.5. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust, t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Allar upplýsingar og verð sem berast inn á Kringlan.is af vefverslun viðkomandi verslunar, og verð eru ekki í samræmi á milli vefsíða, þá gilda verð viðkomandi vefverslunar. Ef vara er á afslætti í vefverslun þá birtist afsláttur einnig á www.kringlan.is.
2.6. Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti á vefsíðunni www.kringlan.is. Vefsíðan www.kringlan.is notar örugga greiðslugátt frá SaltPay á Íslandi.
2.7. Skil og skipti á vörum fara í gegnum viðkomandi verslun, þar sem varan var keypt, en ekki í gegnum Kringluna. Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin. Skilavara skal vera ónotuð, í góðu lagi og í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið, hyggist neytandi nýta sér skilarétt sinn. Greiðslukvittun þarf einnig að fylgja með, en greiðslukvittun berst viðskiptavin á netfangið sem gefið var upp þegar pöntunin átti sér stað. Viðskiptavinir skulu beina slíkum erindum til viðkomandi verslunar. Um skilafrest og endurgreiðslurétt fer að öðru leyti samkvæmt lögum, sbr. lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lögum neytendakaup nr. 48/2003.
3. Hugverkaréttur
3.1. Allur hugverkaréttur sem tengist vefsvæðinu er eign Kringlunnar. Í hugverkarétti felst m.a. hvers kyns höfundarréttur, hönnunarréttur, eignaréttur og sérþekking (know-how), vörumerkjaréttur og einkaleyfaréttur, sem og skyld réttindi, hvaða nafni sem þau nefnast, bein eða óbein.Öll afritun eða dreifing er óheimil.
4. Takmörkun á ábyrgð Kringlunnar
4.1. Kringlan ber ekki ábyrgð á notkun viðskiptavinar á vefsvæðinu www.kringlan.is.
4.2. Kringlan ber ekki ábyrgð á eftirfarandi: a) tjóni sem hlotist getur af vanþekkingu, misskilningi eða misnotkun viðskiptavinar á notkunarreglum vefsvæðisins; b) tjóni sem hlotist getur af vél- og hugbúnaði eða virkni vefsvæðisins; c) tjóni sem hlotist getur af röngum viðskiptum; d) tjóni sem hlotist getur af vanþekkingu, misskilningi, misnotkun eða röngum færslum viðskiptavinar; e) tjóni sem hlotist getur af galla eða bilun í vél- eða hugbúnaði til móttöku á þjónustunni; f) tjóni sem hlotist getur vegna upplýsinga eða aðgerða þriðja aðila.
4.3. Kringlan ber ekki ábyrgð á óþægindum, kostnaði eða öðru fjártjóni, hvort sem um ræðir beint eða óbeint tjón, sem rekja má til lokana, aðgangstruflana eða annarrar röskunar á veitingu þjónustunnar.
4.4. Kringlan ber ekki ábyrgð af tjóni sem rekja má til atvika sem stafa af náttúruhamförum, styrjöldum, verkföllum eða vegna atriða sem talin verða falla undir óviðráðanleg tilvik (force majeure). Þá ber Kringlan ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af vegna lagaskyldna sem Kringlunni ber að fylgja.
4.5. Kringlan er ekki ábyrg fyrir tjóni sem hlýst af vanefndum seljanda, þ.e. verslana Kringlunnar við kaupanda.
4.6. Kringlan ber ekki ábyrgð á því að birt vörugögn verslana á vefsvæðinu www.kringlan.is séu rétt á hverjum tímapunkti.
4.7. Kringlan ber ekki ábyrgð á því ef aðgangur viðskiptavinar að vefsvæðinu www.kringlan.is rofnar, enda gæti það stafað af ýmsum ástæðum, t.d. vélbúnaðarbilunum, tæknilegum bilunum, hugbúnaðarvillum eða kerfisuppfærslum.
5. Persónuvernd
5.1. Við framkvæmd og í tengslum við þjónustuna er nauðsynlegt að vinna ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavin, t.a.m. samskiptaupplýsingar, opinberar upplýsingar, en einnig kann í ákveðnum tilvikum að vera um að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar. Þær persónuupplýsingar sem Kringlan fær frá viðskiptavini eða þriðja aðila í tengslum við notkun á vefsíðunni og eru notaðar við framkvæmd þjónustunnar eru unnar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Viðskiptavinur er eigandi þeirra gagna sem unnið er með af hálfu Kringlunnar í tengslum við þjónustuna.
5.2. Viðskiptavinur samþykkir að Kringlan vinni persónuupplýsingar um hann sem snúa að notkun vefsíðunnar í samræmi við persónuverndarstefnu, öryggisstefnu og skilmála Kringlunnar.
5.3. Um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hjá Kringlunni gildir að öðru leyti Trúnaðaryfirlýsing Kringlunnar.
5.4. Kringlan fer með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og nýtir þær eingöngu til að klára viðkomandi viðskipti.
6. Önnur ákvæði
6.1. Kringlan áskilur sér rétt til að bakfæra einhliða viðskipti viðskiptavinar sem framkvæmd eru á vefsvæðinu, með því að „bakfæra sölu“, í ákveðnum þeim tilvikum, til dæmis þegar lagerstaða reynist ekki rétt. Við framangreindar aðstæður fer endurgreiðsla til viðskiptavinar fram í gegnum endurgreiðsluferli viðkomandi greiðslumiðlunarfyrirtækis og í samræmi við skilmála þess. Komi þessar aðstæður upp er kaupanda send tilkynning um að ekki hafi reynst unnt að staðfesta pöntunina eða um afturköllun hennar.
6.2. Kringlan áskilur sér allan rétt til að ákvarða einhliða þá þjónustu sem er í boði á vefsíðu Kringlunnar á hverjum tíma og rjúfa aðgang að upplýsingum um stundarsakir fyrirvaralaust og án tilkynningar ef þörf krefur, svo sem vegna uppfærslu skráa, breytinga kerfis og þess háttar.
6.3. Kringlan áskilur sér rétt til að uppfæra stefnur og skilmála sína og er ávallt sú útgáfa í gildi sem aðgengileg er á hverjum tíma á vefsíðu Kringlunnar.
6.4. Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna.
6.5. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir gilda frá 18.október 2022.