


Um leikinn
Jólahefð fyrir alla fjölskylduna – piparkökuhúsaleikurinn snýr aftur! 🎄
Það er fátt sem vekur upp jafn ljúfar jólaminningar og ilmurinn af nýbökuðum piparkökum, glassúr á fingrunum og gleðin sem fylgir því að skapa eitthvað fallegt saman. En piparkökuhúsabakstur hefur lengi verið kærkominn hluti af jólaundirbúningi fjölskyldna um land allt og nú ætlar Kringlan og Katla að endurvekja þessa fallegu hefð.
Piparkökuhúsaleikur Kötlu var fyrst haldinn árið 1993 og hefur í gegnum tíðina glatt bæði unga sem aldna í aðdraganda jóla.
Við hvetjum fjölskyldur, vinahópa og öll þau sem hafa gaman af því að skapa til að gefa sér notalega stund saman, leyfa hugmyndafluginu að njóta sín og töfra fram sitt eigið piparkökuhús.
Yngstu bakararnir fá líka að láta ljós sitt skína! Í ár verður sérstakur barnaflokkur þar sem börn 12 ára og yngri geta tekið þátt með sínum eigin piparkökuhúsum. Við hvetjum því litla sem stóra bakara til að láta hugmyndaflugið njóta sín og taka þátt í þessari skemmtilegu jólahefð.
Hvort sem það er lítið og krúttlegt, stórglæsilegt eða alveg út fyrir kassann er um að gera að láta sköpunargáfuna ráða för. Það sem skiptir mestu máli er að njóta samverunnar og búa til fallegar jólaminningar.
Að sjálfsögðu hvetjum við þátttakendur til að nota Kötlu vörur í piparkökuhúsin sín, Katla er með tilbúið piparkökudeig og glassúr sem aðeins er með náttúrulegum litarefnum.
Og það er svo sannarlega til mikils að vinna. Glæsileg verðlaun eru í boði, KitchenAid hrærivél, gjafakort í Kringluna, gjafabréf í Hagkaup, gjafakarfa frá Kötlu, og fatnaður frá 66°Norður.
Öll piparkökuhúsin sem taka þátt verða síðan til sýnis í Kringlunni í aðdraganda jóla, þar sem gestir geta notið þess að skoða húsin og tekið þátt í gleðinni með því að kjósa fallegasta piparkökuhúsið. Það verður því spennandi að fylgjast með hvaða hús heilla gesti mest!
Nú er um að gera að kalla saman fjölskylduna eða vinahópinn, bretta upp ermar og hefjast handa! Hver veit nema ykkar piparkökuhús verði vinningshúsið!
Við hlökkum til að sjá húsin og fylla Kringluna af piparkökuilmi, sköpunargleði og sannkallaðri jólastemningu!

Reglur leiksins
Hvernig tekur þú þátt?
Piparkökudeig
Húsið skal vera gert úr piparkökudeigi. Hefðbundið eða allt annað, hugmyndaflugið ræður!
Frjáls skreyting
Húsið verður að vera skreytt: ekki er hægt að skila inn óskreyttu húsi. Skrautið má vera að eigin vali.
Ljósaseríur leyfðar
Óætar ljósaseríur eru leyfðar til að lýsa upp húsið eða umhverfið.
Allir mega taka þátt
Einstaklingar, fjölskyldur, börn og hópar eru öll hvött til að taka þátt.
Skráning og skil
Skráningarfrestur er til 24. nóvember. Húsunum er skilað í Kringluna 30. nóvember, á 1. hæð.
Sýning í Kringlunni
Húsin verða til sýnis fyrir gesti Kringlunnar 1.–10. desember.
Bíómiði fyrir börnin
Öll börn sem skila inn húsi fá bíómiða.
Verðlaun
Veitt verða vegleg verðlaun
Fyrir fallegasta, frumlegasta og skemmtilegasta húsið bíða glæsileg verðlaun.
- KitchenAid hrærivél frá Byggt og Búið
- 20.000 kr. gjafakort Kringlunnar
- Gjafakarfa frá Kötlu
- 25.000 kr. gjafakort í Hagkaup
- 15.000 kr. gjafakort Kringlunnar
- Gjafakarfa frá Kötlu
- 20.000 kr. gjafakort Kringlunnar
- Taupoki frá 66°Norður
- Húfa frá 66°Norður
- Gjafakarfa frá Kötlu
- 15.000 kr. gjafakort í Hagkaup
Val gesta
Gestir Kringlunnar kjósa fallegasta húsið. Einn heppinn kjósandi verður dreginn út og fær gjafabréf frá Íslandshótelum: gisting fyrir tvo í eina nótt.
Dómnefnd
Hver dæmir?
Þátttaka
Taktu þátt
Skráðu þig fyrir 24. nóvember og við höfum samband með frekari upplýsingum. Húsunum er skilað í Kringluna 30. nóvember, á 1. hæð.
Skráning er opin
Vertu með í ár
Skráningin tekur aðeins mínútu. Fylltu út formið og við sendum þér nánari upplýsingar.
Fyrir frekari fyrirspurnir sendist á kristin@kringlan.is.