Piparkökuhúsleikur
Reglur keppninnar
Piparkökuhúsleikur Kringlunnar og Kötlu
1. Þátttaka
- Allir mega taka þátt: einstaklingar, fjölskyldur, börn með foreldri og hópar.
- Í ár verður sérstakur barnaflokkur þar sem börn 12 ára og yngri geta tekið þátt með sínum eigin piparkökuhúsum.
- Skráningarfrestur er til 24. nóvember. Skráning fer fram á vefnum og er staðfest með tölvupósti.
- Með skráningu samþykkir þú þessar reglur.
2. Húsið
- Húsið skal vera gert úr piparkökudeigi. Hefðbundið eða allt annað, hugmyndaflugið ræður!
- Húsið verður að vera skreytt: ekki er hægt að skila inn óskreyttu húsi. Skrautið má vera að eigin vali.
- Óætar ljósaseríur eru leyfðar til að lýsa upp húsið eða umhverfið.
3. Skil og sýning
- Húsunum er skilað 30. nóvember, á 1. hæð Kringlunnar.
- Húsin verða til sýnis fyrir gesti Kringlunnar 1.–10. desember.
- Öll börn sem skila inn húsi fá bíómiða.
- Kringlan hf. áskilur sér rétt til að nota myndir af húsunum í markaðsstarfi.
4. Dómnefnd og verðlaun
- Dómnefnd velur þrjú bestu húsin: Berglind Hreiðarsdóttir (Eigandi gotterí.is), Unnur María Pálmadóttir (Markaðsstjóri Kringlunnar), Rannveig Tryggvadóttir (Framkvæmdastjóri Kötlu). Ákvörðun dómnefndar er endanleg.
- 1. sæti: KitchenAid hrærivél frá Byggt og Búið, 20.000 kr. gjafakort Kringlunnar, Gjafakarfa frá Kötlu.
- 2. sæti: 25.000 kr. gjafakort í Hagkaup, 15.000 kr. gjafakort Kringlunnar, Gjafakarfa frá Kötlu.
- 3. sæti: 20.000 kr. gjafakort Kringlunnar, Taupoki frá 66°Norður, Húfa frá 66°Norður, Gjafakarfa frá Kötlu.
- Barnaflokkur: 15.000 kr. gjafakort í Hagkaup.
5. Kosning gesta
- Gestir Kringlunnar kjósa fallegasta húsið. Einn heppinn kjósandi verður dreginn út og fær gjafabréf frá Íslandshótelum: gisting fyrir tvo í eina nótt.
- Kosið er á vefnum, á kosningasíðunni, með númeri hússins. Hver einstaklingur (nafn, netfang og símanúmer) getur kosið einu sinni.
Spurningar um keppnina?
kristin@kringlan.is