Nýjar verslanir í Kringlunni

FRÉTTIR

Nýjar verslanir í Kringlunni

Kringlan er sífellt að breytast. Hér er yfirlit yfir nýjustu verslanirnar og breytingar sem hafa orðið.

MANGO opnar í KringlunniOpnun
17. apríl 20264 mín lestur

MANGO opnar í Kringlunni

Dömu- og herralína Mango saman í boði í fyrsta sinn á Íslandi.

Mango, eitt fremsta alþjóðlega tískuvörumerki heims, heldur áfram vexti sínum á Íslandi með opnun nýrrar verslunar í Kringlunni með enn frekara vöruúrval. Nýja verslunin er staðsett í hjarta verslunarmiðstöðvarinnar í rými á aðalgangi Kringlunnar og spannar 667 fermetra. 

Með opnuninni styrkir Mango stöðu sína á íslenskum markaði og býður nú viðskiptavinum upp á enn breiðara vöruúrval en áður hefur þekkst. Í Kringlunni verður í fyrsta sinn á Íslandi boðið upp á nýjustu dömu- og herralínu Mango, ásamt fylgihlutum en auk þess fatnað, sem allur er hannaður á hönnunarstofu Mango í Barcelona af 500 manna sérfræðingateymi.  Vöruúrvalið sameinar tímalausar og fjölhæfar lykilflíkur við nútímalegar og stílhreinar vörur sem sækja innblástur í Miðjarðarhafs-tengingu vörumerkisins.

Opnunin markar því tímamót, þar sem til viðbótar við vöruúrval dömulínu verður herralína Mango í boði í fyrsta sinn á Íslandi. Þar verður boðið upp á nútímalegt og vandað úrval fyrir karlmenn, þar sem hönnun, gæði og þægindi fara saman allt frá klassískum flíkum eins og jakkafötum og þess konar vinnufatnaði yfir í afslappaðari stíl og fylgihluti. Um MANGO

Mango er eitt stærsta alþjóðlega tískufyrirtæki heims. Félagið er þekkt fyrir hönnun og sköpun sem eru í hjarta viðskiptalíkansins og stefnu sem byggir á stöðugri nýsköpun, tryggð við sjálfbærni og heildstæðu vistkerfi dreifileiða og samstarfsaðila.  Mango Man býður upp á fatnað fyrir nútímakarlmanninn frá afslöppuðum streetwear yfir í formleg tilefni. Vörulínan er aðgengileg á yfir 560 sölustöðum í 90+ löndum og í sterkri netverslun í 80+ mörkuðum sem styður við stefnu Mango um metnað, gæði og einkennandi Barcelona-hönnun í bland við framúrskarandi þjónustu. 

AUGLYSING

Vinsælar vörur í Kringlunni

Skoða allt

Fleiri fréttir

Nýjustu fréttir

SUMARÚTSALA
24. júní 2026

SUMARÚTSALA

Sumarútsala í verslunum Kringlunnar er komin af stað. Verslanir bjóða glæsilegar sumarvörur á frábærum kjörum og því upplagt tækifæri til að gera góð kaup.

Fáðu fréttir

Skráðu þig á póstlista

Skráðu þig á póstlistann okkar og vertu fyrst/ur til að vita af nýjum verslunum, viðburðum og tilboðum í Kringlunni.