Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Vetrarfrí í Kringlunni ❄️

Skemmtileg helgardagskrá fyrir alla fjölskylduna

Um helgina verður líf og gleði í Kringlunni þegar skemmtileg dagskrá tekur yfir húsið fyrir krakka og fjölskyldur þeirra.

Laugardagur | 13:00-15:00

Kringluleikarnir 🏅

Í Kringluleikunum fara krakkarnir í skemmtilega þrautabraut með 6 stöðvum þar sem þau leysa einfaldar og skemmtilegar áskoranir. Við komu fá þau sitt eigið þátttökuspjald og safna stimplum á hverri stöð.

Þegar allar þrautirnar eru kláraðar bíða þeirra verðlaun sem þarf að sækja á þjónustuver á 2.hæð þar sem bíómiði er í verðlaun

Innnes mætir á svæðið og gleður krakkana með hressingu, Capri Sun og Prins Póló verða í boði á meðan birgðir endast. Fullkomið til að hlaða batteríin á milli þrauta og halda fjörinu gangandi!

Sunnudagur | 13:00-15:00

Á sunnudaginn breytist húsið í risastóran leikvöll þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt. Í boði verða risaútgáfur af vinsælum spilum sem tryggja keppnisskap og góða samveru.

Sjáumst í Kringlunni í vetrarfríinu ❄️