Tendrum ljósin á jólatrénu
Jólatréið verður tendrað þann 29. nóvember kl 14:00 og þar með hefst pakkasöfnun Kringlunnar. Mæðrastyrksnefnd, Fjölskylduhjálp Ísland og Hjálparstofnun Kirkjunnar deila svo út öllum þeim jólagjöfum sem berast, til fjölskyldna á Íslandi sem þurfa aðstoð fyrir jólin. Tekið er við gjöfum við tréð sem og framlögum á kringlan.is fram að Þorláksmessu.
Dagskráin hefst kl 13:45 þar sem Kór Fossvogskóla mun syngja nokkur vel valin jólalög. Klara Einars stígur á svið og kynnir hinar vinsælu Skoppu og Skrítlu, sem ásamt börnunum úr sýningunni Jólapartý Skoppu og Skrítlu tendra jólatréð og skapa sanna jólastemningu. Jólasveinar verða á vappi og halda uppi stuðinu. Í framhaldinu mun Íslenski Dansflokkurinn flytja glæsilegt brot úr verkinu Jóladraumur, sem nú er sýnt í Borgarleikhúsinu.
DAGSKRÁ
13:40 | Jólasveinar mæta
13:45 | Kór Fossvogskóla
14:00 | Skoppa og Skrítla tendra jólatréð
ca 14:20 | Íslenski Dansflokkurinn flytja glæsilegt brot úr verkinu Jóladraumur
Ölgerðin mun bjóða upp á Malt og Appelsín, og Freyja verður með dásamlegt smakk á konfekti.