Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 11:00 - 18:00

OPNUNARTÍMI
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

16.desember 2022

Sambíó opnar eftir glæsilegar umbætur og sýnir Avatar í sólarhring!

Sambíóin Kringlunni opnuðu loksins dyrnar upp á gátt í morgun að loknum framkvæmdum sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði.

Sambíóin Kringlunni opnuðu loksins dyrnar upp á gátt í morgun að loknum framkvæmdum sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Ráðist var í metnaðarfullar breytingar á aðkomu og veitingasölu bíósins og eru nú í nýjum og fallegum litum.  Óhætt er að segja að ásýnd bíósins hafi tekið stakkaskiptum og er nú öll hin glæsilegasta.

Paolo Gianfrancesco hjá THG Arkitektum sá um að hanna endurbæturnar á húsnæðinu þar sem upplifun og þarfir bíógesta voru höfð að leiðarljósi en á sama tíma var vel gætt að viðhalda þeim góða anda og stemningu sem ætíð er að finna í Sambíóunum Kringlunni. Opnunartími Sambíóanna Kringlunni verður lengri en víða annars staðar en  sýningar munu hefjast fyrr á daginn og um helgar verður boðið upp á morgunbíó sem vonandi kemur fjölskyldufólki og öðrum morgunhönum sérlega vel.

Stórrmyndin Avatar sýnd í sólarhring

Í dag, 16.desember, er frumsýningardagur á stórmyndinni Avatar: The Way of Water eftir James Cameron, sem er framhald af Avatar sem var frumsýnd 2009, tekjuhæstu kvikmynd allra tíma. Sambíóin Kringlunni ætla því að fagna enduropnun bíósins og frumsýningardegi Avatar: The Way of Water með því að sýna myndina í heilan sólarhring.

Glæsilegasti lúxussalur landsins

Stærsta og metnaðarfyllsta breytingin á bíóinu er án nokkurs vafa glænýr og glæsilegur Lúxussalur sem mun bjóða upp á það allra besta sem völ er á þegar kemur að hljóð- og myndgæðum. Salurinn kemur til með að rúma 70 manns. Sætin verða fyrsta flokks með öllum þeim þægindum sem hægt er að hugsa sér og einnig mun salurinn luma á nýjung hér á landi þegar kemur að bíóupplifun en fremst í salnum verða legusæti þar sem virkilega er hægt að láta fara vel um sig líkt og í sófanum heima. Aftast í salnum verður svo að finna sérstök parasæti eða „private panel“ þar sem pör geta legið þétt saman og notið sýningarinnar.

Lúxussalurinn er ekki alveg tilbúinn en framkvæmdirnar eru á lokametrunum og verður salurinn vígður með pompi og prakt í janúar.

Ekki skyggir það á að núna í desember verður Avatar: The Way of Water komin í sýningu eins og áður segir og síðar í jólamánuðinum eru væntanlegar í sýningu myndirnar "I Wanna Dance With Somebody" sem fjallar um ævi og störf stórsöngkonunnar Whitney Houston og teiknimyndin um Stígvélaðaköttinn "Puss in Boots: The Last Dance"

Strax í janúar á nýju ári eru nokkrar stórmyndir væntanlegar en það eru "Babylon" með Brad Pitt og Margot Robbie í aðalhlutverkum og tvær íslenskar myndir "Napóleonskjölin" og "Villibráð." Ekki má gleyma Metropolitan óperunni sem snýr aftur í Sambíóin Kringluna eftir hart nærri tveggja ára hlé.

Það má því með sanni segja að það sé nóg um að vera í Sambíóunum Kringlunni og við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin aftur.