9. og 10.desember
Skemmtileg jólahelgi framundan

Það verður skemmtilegt að undirbúa jólin í Kringlunni helgina 9. og 10.desember
Kringlan er komin í sinn fallegasta jólaskrúða og starfsmenn verslana og veitingastaða taka á móti þér í jólaskapi.
Von er á jólasveinum bæði laugardag og sunnudag en þeir eru á fullu við undirbúning heimsókna til barna sem setja skóinn út í glugga frá og með 12.desember. Það verður lifandi tónlist í göngugötu sem gleður gesti og gangandi.
Góður gestur kemur til okkar sunnudaginn 10. desember kl. 14. Það er enginn annar en PATRi!K AKA PRETTIBOITJOKKO.
Hann mun flytja sína ofurvinsælu smelli og auðvitað jólalagið fyrir gesti Kringlunnar.
Hann verður við sviðið hjá jólatré Kringlunnar á 1. hæð.
Hjartanlega velkomin.