Notaleg og skemmtileg morgunstund fyrir 60 ára og eldri.

MORGUNSTUND FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI Í KRINGLUNNI

MORGUNSTUND FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI Í KRINGLUNNI

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á notalega og skemmtilega morgunstund fyrir 60 ára og eldri í Kringlunni miðvikudaginn 2. september frá 10:00-13:00

Framundan er fjölbreytt dagskrá með skemmtun, tónlist, dansi, góðum tilboðum, kynningum og dekri.

Dagskrá:

10:00 - 12:00 | Frí naglalökkun og handadekur frá Essie

11:00 - 11:40 | Bingó í bíóinu með Evu Ruzu Veglegir vinningar frá verslunum Kringlunnar.

12:00 | Upplestur í Borgarbókasafninu

12:00 - 12:30 | Línudans á 1. hæð við Blómatorg Meðlimir í Félagi íslenskra línudansara sýna dansa og bjóða upp á létta kennslu.

12:30 - 13:00 | Tónlist á 1. hæð við Blómatorg Félag harmonikkuunnenda í Reykjavík flytur ljúfa tóna fyrir gesti.

Smakk og kynningar á ganginum hjá Vero Moda: - Heilsa ehf, Mjólkursamsalan, L’Occitane, Freyja og Borgarleikhúsið

Boðið verður upp á uppáhelt kaffi frá Te & Kaffi ásamt kökusneið á meðan birgðir endast.

Verið velkomin í notalega morgunstund í Kringlunni með fjölbreyttri dagskrá, skemmtun og dekri.