19. september

Lífræni dagurinn í Kringlunni

Lífræni dagurinn í Kringlunni

Lífræni dagurinn 19. september

Í tilefni þess að lífræni dagurinn verður haldinn hátíðlegur í fimmta sinn laugardaginn 19. september verður lífrænn markaður í Kringlunni fyrir alla fjölskylduna kl 11-18.

Þar gefst almenningi einstakt tækifæri til að hitta bændur, smakka, versla og kynnast fólkinu á bakvið lífrænu framleiðsluna, sem eins og staðan er í dag er aðeins um 1% landbúnaðar á Íslandi. Auk lífræna markaðarins verður sérstök barnadagskrá, þar sem yngstu gestirnir fá að kynnast uppruna matarins á skemmtilegan hátt og bregða sér í hlutverk lífræns spæjara

Kl. 13:00 mun Atvinnuvegaráðuneytið veita einum lífrænum framleiðanda viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni framleiðslu. Viðurkenningin er árlega veitt aðila sem hefur skarað fram úr í ræktun, framleiðslu eða framþróun lífrænna afurða á Íslandi. 

Í Kringlunni verða ýmsir framleiðendur á staðnum:

Biobú lífrænar með mjólkurafurðir

Villimey með lífrænar húðvörur

Yrkja - Syðra Holt lífræn garðyrkjustöð

GRÆNT - Breiðargerði - lífrænt grænmeti og framleiðsla

Móðir jörð - lífræn kornrækt og framleiðsla

Sölvanes - lífrænt sauðfjárbú

Biobóndinn - lífræn kartöflurækt og fleira

Sólheimar - lífræn jurtastofa og kaffibrennsla

Akur organic - lífrænar gulrætur o.fl.

Lífræni dagurinn er opinn öllum. Hlökkum til að sjá ykkur!