Kringlukló 14. - 15. mars
Hin ofurvinsæla Kringlukló verður í boði laugardag og sunnudag með Hagkaup og Miniso
Kringlukló er útfærð hugmynd af vinsælu spilatæki þar sem dót, bangsar eða sælgæti er fangað með lítilli járnkló sem stjórnað er með stýripinna.
Kringluklóin er frábrugðin að því leyti að börnin sjálf eru klóin. Þau eru sett í öruggt belti, fá hjálm á höfuðið og eru síðan látin síga ofan í gryfju sem geymir alls konar verðlaun. Af því sem börnum tekst að fanga mega þau velja sér einn hlut til að eiga.
Kringluklóin verður staðsett á 1. hæð í miðri göngugötu og er ætluð börnum á aldrinum 4-12 ára. Þátttaka er frí en miðar eru í takmörkuðu upplagi.
Smelltu HÉR til þess að sjá myndband af Kringluklónni.
Hlökkum til að sjá ykkur!