Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 11:00 - 18:00

OPNUNARTÍMI
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Frá kl.13

Kringlukló 24.-25.febrúar

Kringluklóin verður á mánudag og þriðjudag með Hagkaup & Miniso!

Kringlukló er útfærð hugmynd af vinsælu spilatæki þar sem dót, bangsar eða sælgæti er fangað með lítilli járnkló sem stjórnað er með stýripinna. Kringluklóin er frábrugðin að því leiti að börnin sjálf eru klóin. Þau eru sett í öruggt belti, fá hjálm á höfuð og eru síðan látin síga ofan í gryfju sem geymir alls konar verðlaun. Af því sem börnum tekst að fanga, mega þau velja sér einn hlut til að eiga. Kringluklóin verður staðsett á 1.hæð í miðri göngugötu og er fyrir krakka á aldrinum 4 -12 ára.

Mánudagur 24.febrúar kl 13. Kringlukló: Skemmtileg flugferð í boði fyrir krakka sem fá að auki glaðning frá verslun Hagkaups. Númerum verður dreift til barna á slaginu kl. 13.

ATH. að takmarkaður miðafjöldi er í boði.

Þriðjudagur 25.febrúar kl. 13.Kringlukló: Skemmtileg flugferð í boði fyrir krakka sem fá að auki glaðning frá verslun Miniso. Númerum verður dreift til barna á slaginu kl. 13.

ATH. að takmarkaður miðafjöldi er í boði.

Smelltu HÉR til þess að sjá myndband af Kringluklónni.

Hlökkum til að sjá ykkur!