Kringlan tilnefnd til virtra breskra verðlauna
Bresku samtökin REVO hafa tilfnefnt Kringluna vegna djarfra framkvæmda.
Kringlan verslunarmiðstöð hefur hlotið tilnefningu til Revo´s verðlauna fyrir vel heppnaðar framkvæmdir.
Tilgangur með Revo verðlaunum að vekja athygli á bestu og árangursríkustu breytingum fasteigna, breytingum sem miða af því að uppfylla betur þarfir viðskiptavina og styrkja svæði enn frekar sem vinsælan viðkomustað.
Tilnefning Kringlunnar lýtur að breytingum á 3ju hæð þar sem nú er starfrækt vinsæl mathöll, Kúmen, sem og glæsilegur lúxusbíósalur sem smíðaður var upp úr þaki verslunarmiðstöðvarinnar.
Verðlaunin verða kynnt þann 6.desember við hátíðlega athöfn í London.
Við endurbætur hæðarinnar hefur Kringlan notið ráðgjafar breska félagsins M Worldwide, sem sérhæfir sig í lífstílstengdum verkefnum og THG Arkitekta. Paolo Gianfrancesco frá THG leiddi verkefnið sem stóð yfir í tæp 2 ár. “Tilnefning til verðlauna Revo er mikill heiður. Það var mjög djörf hugmynd að byggja lúxussal upp úr þaki Kringlunnar en sú áskorun arktiekta og verkfræðinga gekk fullkomlega upp. Sömu sögu er að segja um Kúmen, breytingar þar eru gríðarlega vel heppnaðar og ánægja viðskiptavina ótvíræð. Við þökkum fyrir það traust sem okkur hjá THG var sýnt við hönnun og framkvæmd eins stærsta og krefjandi verkefnis sem Kringlan hefur ráðist í.”
Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar : “Við hjá Kringlunni erum mjög stolt af þessari miklu viðurkenningu í umhverfi mikillar samkeppni. Viðskiptavinir kunna vel að meta þessar breytingar og Kúmen er þegar orðinn mjög vinsæll áfangastaður Kringlu – og bíógesta.”
Hér má lesa nánar um Revo og verðlaunaflokka: