Gjafakort er frábær jólagjöf
Gjafakort Kringlunnar er vinsæl jólagjöf sem sannarlega hittir í mark. Þau gilda í öllum verslunum.
Gjafakortin fást í þjónustuveri Kringlunnar á 2. hæð á milli Nova og Englabarna. Hægt er að kaupa kort fyrir hvaða upphæð sem er, þó að hámarki 100.000 kr og að lágmarki 3.000 krónur. Hægt er að fá gjafakortin í fallegri gjafaöskju og þá er gjöfin klár.
Þú getur líka keypt gjafakort hér á kringlan.is ef greitt er með debet- eða kreditkorti og látið senda í ábyrgðarpósti til viðtakanda ásamt kveðju.