Grímuskylda í Kringlunni
Fylgjum gildandi leiðbeiningum og reglum almannavarna varðandi sóttvarnir.
Í Kringlunni er grímuskylda, bæði í göngugötu og í verslunum og sprittstandar við innganga. Notum grímu, sprittum hendur og virðum 2 metra regluna. Með samstilltu átaki komumst við öll hraðar í gegnum þessa bylgju.
Það er gott að undirbúa vel ferð í Kringluna, skoða vöruúrval í vöruleitinni hér á kringlan.is og flýta þannig fyrir verslunarferðinni. Flestar verslanir bjóða netverslun. Í þeim tilfellum sem netverslun er ekki til staðar er boðið upp á símgreiðslur. Þá getur þú valið að fá heimsent, sækja vöru í póstbox Kringlunnar sem er opið til kl.23 öll kvöld eða sækja í verslun.
Velkomin í Kringluna, líka á vefnum.