Verslanir söfnuðu rúmum 2 milljónum
Góðgerðadagurinn „Af öllu hjarta“ er verkefni sem Kringlan hleypti af stokkunum fyrir nokkrum árum,en í því felst að einn dag á ári gefa verslanir og veitingastaðir hússins 5% af veltu dagsins til góðs málefnis.
Söfnunin fór fram 19.september sl og var dagurinn í Kringlunni helgaður Foreldrahúsi - Vímulausrar æsku, sem safnar fyrir eigin húsnæði fyrir starfsemina. Samstillt átak verslunareigenda í einni stærstu verslunarmiðstöð landsins áorkar miklu til samfélagslegs málefnis af þessu tagi auk þess sem félagið fær ómetanlegt tækifæri til kynningar og fræðslu.
Í ár söfnuðust 2.118.617 kr. og mun söfnunarféð koma félaginu að miklu gagni við að veita sem bestan stuðning til ungmenna í vímuefnavanda sem og fjölskyldum þeirra.