Um verslunina
Útilíf er öflugt og rótgróið íslenskt smásölufyrirtæki með íþrótta- og útivistarvörur en fyrirtækið var stofnað árið 1974. Verslun Útilífs í Kringlunni hefur á að skipa íþróttavörudeild, barnadeild, skódeild, útivistardeild og sunddeild. Mikil áhersla er lögð á vandað vöruúrval og bestu mögulegu gæði, en einnig vörur í ýmsum verðflokkum. Þar af leiðandi ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í verslunum Útilífs. Útilíf vil veita viðskiptavinum sínum afburða þjónustu og kappkostar því að í öllum deildum starfi sérfræðingar á viðkomandi sviði.
