Um verslunina
Nýr, stórglæsilegur VIP salur opnaði 2.febrúar 2023. Salurinn sem ber nafnið Ásberg rúmar 72 manns. Sætin eru fyrsta flokks með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér, ss þráðlausri hleðslu fyrir snjallsíma, hita í sætum og borð fyrir veitingar. Einnig lumar salurinn á nýjung hér á landi þegar kemur að bíóupplifun en fremst í salnum eru glæsileg legusæti þar sem virkilega er hægt að láta fara vel um sig líkt og í sófanum heima. Aftast í salnum er svo að finna sérstök parasæti eða“private panel” þar sem pör geta legið þétt saman og notið sýningarinnar. Gæði myndar og hljóðs eru einstök með Dolby Atmos hljómgæðum
Sambíóin Kringlunni var byggt árið 1996 og var fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi sem byggt var inn í verslunarmiðstöð. Kvikmyndahúsið er búið 3 sýningarsölum. Það var fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi sem bauð uppá THX hljóðkerfi í öllum sölum. Sambíóin Kringlunni er fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi sem býður uppá DIGITAL bíósýningar og er leiðandi í þeirri tækni hér á Íslandi. Það eru númeruð sæti og bilið milli sætanna er með því mesta sem boðið er upp á á Íslandi. Þar er einnig boðið af og til upp á óperur í beinni útsendingu frá Metropolitan óperunni í New York.
