Um verslunina
Allt frá því að Rikki Chan opnaði fyrst dyrnar á skyndibitatorginu Kvikk í Kringlunni árið 1992 hefur staðurinn skipað fastan sess í hjörtum landsmanna. Veitingastaðurinn var opnaður af hjónunum Ríkharði Chan og Önnu Gretu Gunnarsdóttur og er enn rekinn af sömu fjölskyldu. Staðurinn fylgdi Kringlunni yfir á Stjörnutorg og tekur nú á móti svöngum gestum í nýju og glæsilegu mathöllinni Kúmen á þriðju hæðinni. Matseðillinn samanstendur enn af sömu traustu og sívinsælu réttunum á borð við djúpsteiktar rækjur, karrýrétti og súrsætt kjöt. Verið velkominn
