Um verslunina
L'Occitane en Provence er alþjóðleg verslunarkeðja sem býður upp á fjölbreytt úrval af náttúrulegum bað- og snyrtivörum. Fyrirtækið var stofnað árið 1976 af Olivier Baussan í Provence í Suður-Frakklandi. Olivier nýtti áhuga sinn á dýrmætum fjársjóði náttúrunnar og skapaði snyrtivörufyrirtæki sem byggði hugmyndafræði sína á ilmkjarnaolíum og náttúrulegum innihaldsefnum.
