Kringlukráin

Matur og drykkur

Kringlukráin

3. hæð

Til baka|Forsíða/Verslanir/Kringlukráin

Um verslunina

Kringlukráin er lifandi veitingahús sem leggur áherslu á góðan mat og faglega þjónustu. Staðurinn opnaði 1. mars 1989 og hefur aukið vinsældir sínar jafnt og þétt. Þar fara saman klassískt yfirbragð og notalegt andrúmsloft, hvort sem er í hádeginu eða á kvöldin. Á svölunum okkar er hægt að njóta þess að sitja úti í góða veðrinu með mat og drykk.

Matseðillinn okkar er í senn einstakur og fjölbreyttur. Á honum er að finna vandaða rétti, framreidda úr besta fáanlega hráefni, meðal annars girnileg salöt, ferskan fisk, pítsur og safaríkar steikur.

Alla virka daga í hádeginu bjóðum við upp á rétti dagsins sem samanstanda af ferskum fiskrétti og kjötrétti ásamt súpu og nýbökuðu brauði.

Við bjóðum einnig upp á glæsilega aðstöðu fyrir fundi, ráðstefnur og einkasamkvæmi. Hægt er að velja um mismunandi sætauppsetningar, hlaðborð eða sér samsetta veislumatseðla og við sjáum um skipulagið frá upphafi til enda.

Gestir Borgarleikhússins geta notið tveggja eða þriggja rétta leikhússeðils á hagstæðu verði fyrir sýningar.

Hefðirnar skipa sérstakan sess hjá okkur. Þorláksmessuskata, saltkjöt og baunir á sprengidag og þorramatur á þorra eru vinsælir viðburðir sem margir bíða eftir ár hvert og oft komast færri að en vilja. Við leggjum metnað í að halda þessum íslensku matarhefðum á lofti og bjóða hefðbundnar kræsingar eins og þær gerast bestar.

Hvort sem þú kemur í kaffi, hádegisverð, kvöldmat, fund eða veislu leggjum við okkur fram um að veita persónulega þjónustu og skapa eftirminnilega upplifun. Opnunartímar:

Mánudagar til miðvikudaga: 11:30–21:00

Fimmtudagar og föstudagar: 11:30–22:00

Laugardagar: 12:00–22:00

Sunnudagar: 14:00–21:00