Um verslunina
Gullnáman er staðsett hjá Kringlukránni á 3.hæð. Gullnáman kallast þær spilavélar sem geta gefið Gullpottinn, en hann virkar samkvæmt kerfi sem kallað er Mystery Jackpot. Til að vinna Gullpottinn þarf ekki að spila fyrir hámarks upphæð og heldur ekki að fá vinningslínu með ákveðnum táknum. Þess í stað er fyrirfram ákveðið í kerfinu hvenær Gullpotturinn fellur næst, þ.e. potturinn verður að vera búinn að ná tiltekinni upphæð til að falla.