Mi Bowls

Matur og drykkur

Mi Bowls

3. hæð

Til baka|Forsíða/Verslanir/Mi Bowls

Um verslunina

Mì bowls er víetnamskur skyndibitastaður

Á bak við staðinn eru þrjár frænkur sem eiga ættir að rekja til Víetnam. Mì þýðir núðlur á víetnömsku. Eins og nafnið gefur til kynna er lögð áhersla á núðlurétti þar sem viðskiptavinurinn getur valið á milli núðlusúpu eða núðluskálar. Til að fullkomna máltíðina bjóðum við líka upp á okkar fræga íste.

 

Aðaláherslan staðarins er að bjóða viðskiptavinum upp á holla, ferska, fljótlega og bragðgóða núðlurétti. Í okkar matargerð vinnum við með íslenskt hráefni og gæða asískar kryddjurtir til að töfra fram hið ómótstæðilega bragð af víetnömskum réttum. Markmið okkar er að kynna fyrir viðskiptavinum víetnamska matarmenningu. Hjá Mi bowls ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.