Pistill

Tíska eða stíll

·Höfundur: Kolbrún Pálína Helgadóttir
Tíska eða stíll

Er tíska það sama og stíll? Af hverju eru svo margar konur í svörtu þegar augun þeirra leita í allt aðra átt? Í fyrsta pistli sínum fyrir Kringluna veltir Kolbrún Pálína Helgadóttir fyrir sér muninum á tísku og stíl, af hverju við klæðum okkur stundum fyrir aðra frekar en okkur sjálfar og hvernig við finnum það sem raunverulega hentar okkur. Þetta er pistill um liti, sjálfstraust, sjálfsmynd og spurninguna sem gæti breytt því hvernig þú horfir á fataskápinn þinn

Er tíska það sama og stíll?

Ég var ekki mjög gömul þegar ég fór að taka eftir því að litir gerðu eitthvað fyrir mig sem hlutlausir tónar gerðu ekki.

Á meðan búðir fylltust af svörtu, gráu og hlutlausum tónum fann ég mig sífellt oftar dragast að litum. Djúpum bleikum tónum, grænum og fjólubláum. Mynstrum og fatnaði sem vakti viðbrögð. Ekki vegna þess að ég vildi vekja athygli. Heldur vegna þess að mér leið betur í þeim.

Það var svo forvitnilegt að fylgjast með því hvað gerðist í hvert sinn sem ég mætti í litríkri flík í vinnuna. Nánast undantekningarlaust hófst samtal.

„Ég elska þennan lit.“

„Mig hefur alltaf langað að klæðast svona.“

„Ég þori því bara ekki.“

„Ég er alltaf í svörtu.“

Ég fór því að að velta fyrir mér af hverju. Af hverju eru svo margar konur í litum sem þær völdu kannski ekki sjálfar? Af hverju felum við okkur stundum á bak við örugga litapallettu þegar augun okkar leita í allt aðra átt?

Svörin eru eflaust jafn mörg og við erum margar. Sumum líður einfaldlega best í svörtu. Fyrir þær er svartur ekki bara litur heldur hluti af þeirra persónulega stíl, og það er fallegt.

En ég hef oft grunað að sumar konur séu ekki í svörtu af því að þær elski svart. Heldur af því að þær hafa vanist því. Þær hafa aldrei gefið sér tíma til að spyrja:

Hvaða litir kalla í raun á mig?

Það er kannski einmitt þar sem umræðan um tísku og stíl byrjar.

Tíska er stundleg – stíll er þinn

Tíska er það sem er núna. Hún breytist með árstíðum, straumum og samfélagsmiðlum. Eitt árið eru víðar gallabuxur allsráðandi, það næsta þröngar. Einn veturinn eru allir í brúnu, þann næsta í vínrauðu. Tíska getur verið skemmtileg, skapandi og veitt innblástur. En stíll er eitthvað allt annað. Stíll mótast með tímanum, reynslunni og lífinu. Hann verður til þegar þú lærir hvað fer þér vel, hvað hentar þínu lífi, hvað veitir þér innblástur og ekki síst, hvað lætur þér líða vel. Hann snýst ekki um að fylgja straumum. Heldur að þekkja sjálfa sig.

Kannski er það ástæðan fyrir því að margar konur upplifa meira frelsi með aldrinum. Við hættum smám saman að klæða okkur fyrir samþykki annarra og byrjum að velja það sem hentar okkur sjálfum, og þar verður stíllinn til.

Í raun eru margar af þeim konum sem hafa hvað sterkastan stíl eru oft þær sem elta tískuna síst. Þær vita einfaldlega hverjar þær eru. Þær kaupa ekki flík vegna þess að hún er vinsæl. Þær kaupa hana vegna þess að hún passar inn í líf þeirra, persónuleika og fataskáp.

Tískan veitir innblástur

Tískan spilar auðvitað alltaf sitt hlutverk og er dásamleg fyrir margar sakir. Hún gefur okkur innblástur, nýjar hugmyndir. Hún getur hvatt okkur til að prófa nýja liti, ný snið eða ný efni. Hún getur hjálpað okkur að sjá okkur sjálf í nýju og óvæntu ljósi. Lykillinn er bara að muna hver ræður. Notum tískuna sem innblástur. Ekki sem leiðbeiningarhandbók.

Þegar við stöndum frammi fyrir nýrri flík er kannski gagnlegasta spurningin ekki:

„Er þetta í tísku?“

Heldur:

„Er þetta ég?“

Ef enginn væri að horfa?

Þessi spurning fær þig til að komast nær persónulega stílnum þínum. Ef enginn væri að horfa. Ef engin áhrifavaldur hefði sagt þér hvað væri fallegt. Ef engin vinkona hefði skoðun. Ef enginn væri að dæma. Hvaða litir myndu draga þig að sér? Hvaða snið myndu kalla á þig? Hvaða efni myndir þú vilja klæðast? Mjúkt og flæðandi? Strúktúr og skarpar línur? Dramatísk mynstur eða einföld form?

Þar leynast oft vísbendingarnar um okkar eigin stíl.

Fatnaður segir sögu

Við segjum oft að við eigum ekki að dæma bók af kápunni, og það er rétt. En sannleikurinn er líka sá að fatnaður er tjáningarform. Litir, áferð, snið og fylgihlutir segja sögu áður en fyrsta orðið er sagt. Ekki endilega um hver við erum. Heldur hvernig okkur líður og stundum er það einmitt það sem gerir stíl svona heillandi. Hann er lifandi og hann breytist með okkur.

Konan sem ég var tvítug er ekki sama konan og ég er í dag, og sem betur fer er stíllinn minn það ekki heldur.

"Fashion fades, only style remains the same."

— Coco Chanel

Þessi frægu orð Coco Chanel bendir einmitt á að stíll er stöðugur og byggður á ákveðjum kjarna sem fylgir okkur út frá reynslunni okkar. Eitthvað sem er okkar. Eitthvað sem ekki er hægt að kaupa eða afrita.

Þess vegna eru þær manneskjur sem veita okkur mestan innblástur yfirleitt ekki þær sem fylgja öllum straumum. Heldur þær sem virðast hafa fundið sjálfan sig.

Hvernig mótast persónulegur stíll í raun?

Stíll verður ekki til á einni nóttu. Hann mótast hægt í gegnum lífið, með mistökum í fatavali, skemmtilegum tískuslysum, röngum farða, vondri klippingu, réttu litavali sem dregur fram auglitinn þinn, með flík sem þú grípur  aftur og aftur, sniði sem þú tímir aldrei að láta frá þér og svo mörgu öðru. Þið tengið sem tengið.

Það eru engar reglur. En það eru spurningar, og þær eru oft gagnlegari en öll ráðin:

Fimm spurningar sem hjálpa þér að finna stílinn þinn

1.  Hvaða flíkur veita mér sjálfsöryggi og styrk?

Ekki styrk að utan heldur að innnan. Það eru tvennt ólíkt. Þegar þú tekur eftir því tvisvar, þrisvar að þér líði öruggri í flíkinni. þá er eitthvað þar.

2. Hvað er alltaf til í fataskápnum – og hvað hef ég aldrei klæðst?

Þetta eru tvær mjög mismunandi vísbendingarnar. Annað segir þér hvað þú elskar. Hitt segir þér hvað þú keyptir fyrir einhvern annan en sjálfan þig.

3. Ef ég gæti klæðst hvernig sem er í dag, hvað myndi ég velja?

Án þess að huga að því hvort það sé við hæfi, hlutlægt, eða í tísku. Bara: hvað myndi líða vel?

4. Hvaða kvenmaður hefur þann stíl sem ég finn mig alltaf að skoða?

Hvaða kona veitir mér innblástur með fatavali sínu. Hvað er það í stílnum hennar sem talar til mín? Er það litapallettan? Einfaldleikinn? Hugrekkið? Þar eru oft vísbendingarnar.

5. Hvenær keypti ég síðast flík sem var alveg ég?

Ekki gagnleg. Ekki á tilboði. Ekki vegna þess að hún var vinsæl. Heldur vegna þess að þú sást hana og þekktir þig í henni.

Og hvað með þig?

Ef enginn hefði áhrif á þig,  hvorki tískan, samfélagsmiðlar né skoðanir annarra, hvaða litir myndu kalla á þig? Hvaða snið myndu láta þér líða eins og bestu útgáfu af sjálfri þér?

Kannski er svarið svart. Kannski er það skærbleikt. Kannski eitthvað þar á milli. Það skiptir í raun ekki máli.

Það sem skiptir máli er að valið sé þitt.