Tískusýning Kringlunnar fór fram á Tískudögum Kringlunnar þar sem hausttískan fékk að lifna við í óvenjulegu umhverfi. Tinna Aðalbjörnsdóttir og Anna Clausen leiddu listræna mótun og stíliseringu sýningarinnar og sameinuðu þar áralanga reynslu sína úr íslenskum og alþjóðlegum tískuheimi.
Anna er ein af þekktari fagkonum íslensks tískulífs og hefur starfað sem ritstjóri, stílisti og listrænn stjórnandi auk þess að hafa unnið með alþjóðlegum tískutímaritum á borð við Vogue. Tinna býr sömuleiðis yfir áralangri reynslu úr tískuheiminum, meðal annars sem listrænn stjórnandi og casting director.
Við tókum Tinnu tali um tískusýninguna, gæsahúðina, góðan stíl, draumaflíkurnar og trendin sem hún vonar innilega að þurfa aldrei að upplifa aftur.
Sagan kemur fyrst
Fyrir Tinnu snýst góð tískusýning ekki bara um falleg föt á fallegu fólki. Hún þarf að segja sögu og skapa stemningu.
„Fyrir mér byrjar þetta á því að segja sögu sem gengur upp frá A til Ö. Út frá henni verða svo lúkk, tónlist og öll umgjörðin til. Það á sérstaklega við þegar ólíkar verslanir Kringlunnar koma saman á einum sýningarpalli. Hver þeirra hefur sinn karakter, sína viðskiptavini og sína fagurfræði en verkefnið er að láta þessa ólíku heima mynda eina sterka heild."
Tinna segir mikilvægt að tískusýning sé líka upplifun. Á tímum þar sem stór hluti tískuheimsins býr á skjánum snýst sýningin um að færa tískuna aftur út í rýmið.
„Tískusýning snýst fyrir mér um að halda í það að sjá, heyra og finna. Að mæta á staðinn, hitta annað fólk og sýna sig. Að þetta verði ekki allt bara online. Þegar ljósin kvikna og fyrsta módelið stígur inn á pallinn er markmiðið einfalt:
Fyrst og fremst vil ég að öllum líði vel, en helst vil ég að fólk fái smá gæsahúð þegar tónlistin byrjar og fyrsta módelið gengur inn.“

Hvað er góður stíll í þínum augum? Sjálfstraust. Að halda í sinn eigin stíl, treysta honum og vera óhrædd við að fara eigin leið.
Hverjar eru þínar helstu tískufyrirmyndir? Gwen Stefani er mitt helsta tísku-icon og hefur verið það síðan ég var unglingur. Ég elska líka stílinn hennar Irinu Shayk og svo finnst mér Miley Cyrus alltaf flott. Hún þorir að fara sínar eigin leiðir og er aldrei föst í sama stílnum.
Best klædda manneskjan sem þú þekkir? Pattra vinkona mín er alltaf með frábæran stíl og kann að setja saman ólíka hluti og liti. Mér hefur líka alltaf fundist Anna Clausen hafa einstakan stíl. Hún er óhrædd við að fara sína leið og gerir einhvern veginn allt fallegt sem hún klæðist.

Hvað ráðleggurðu konu sem finnst hún hafa týnt stílnum sínum? Að fá stílista til að renna með sér yfir fataskápinn. Stundum þarf ekki nema klukkutíma og fersk augu til að sjá fötin sín upp á nýtt og læra að setja þau öðruvísi saman.
Hvaða tískutímabil hefðir þú viljað upplifa? 70s. Klárlega.
Trend sem má alls ekki koma aftur? Lágar buxur með G-strenginn upp úr!
Stærstu tískumistök Tinnu? Nákvæmlega það sama. Að vera í svo lágum gallabuxum að maður gat varla sest niður án þess að nærbuxurnar sæjust. Okkur þótti þetta auðvitað alveg stórkostlega flott á sínum tíma.
Trend sem þú myndir endurvekja strax á morgun? Skirt suits.

Hvað verður „hlutur haustsins“? Fallegir fylgihlutir – töskur, klútar og hattar.
Hvað er á draumalistanum fyrir haustið? Chloé skirt suit, suit frá Sævari, jakki og kjóll frá Isabel Marant og leðurstígvél frá Gia Borghini.

