Pistill

Við eigum bara að klæðast því sem okkur líður vel í, það sama fer alls ekki öllum.

Við eigum bara að klæðast því sem okkur líður vel í, það sama fer alls ekki öllum.

Stíll snýst ekki alltaf um að elta nýjustu trendin – heldur að finna það sem manni líður vel í og gera það að sínu. Ingibjörg Kristófersdóttir, eigandi Mathildu, þekkir tískuheiminn vel og hefur í gegnum árin mótað sinn eigin stíl þar sem þægindi, einföld snið og klassískar flíkur eru í aðalhlutverki.

Við fengum Ingibjörgu til að segja okkur aðeins frá sínum persónulega stíl, hvaðan hún sækir innblástur, bestu – og verstu – kaupunum í gegnum tíðina og hvað er á óskalistanum fyrir haustið.

Lýstu stílnum þínum í þremur orðum. Einfaldur og  þægilegur

Hvenær fannst þér þú fyrst finna þinn eigin stíl og hefur stíllinn þinn breyst með aldrinum? Ef já, hvernig? Um tvítugt myndi ég segja og hann hefur í raun ekki breyst mikið, hef alltaf verið mikið fyrir svartan lit – einföld snið og leður.

Hvaða flík líður þér mest eins og sjálfri þér í? Svartar leður buxur eða góðar gallabuxur og hvítur toppur eða góð peysa

Dakota Gallabuxur

Hvað hefur haft mest áhrif á stílinn þinn? Þægindi umfram allt annað

Áttu þér einhverja stílfyrirmynd?  Pernille Utzon- Ralph Lauren – Nili Lotan og svo finnst mér Victoria Beckham alltaf flott .  Magnus vinur minn frá Oslo er síðan einhver sem er unun að fylgjast með.  Hann á Infinity Agency sem ég versla mikið við fyrir Mathilda.

Hverjum fylgist þú helst með fyrir innblástur? Nota mikið Pinterest,  set inn hverju ég er að leita af og fæ þannig góðar hugmyndir.  Nota þetta mikið þegar ég er að ferðast og til að fá hugmyndir um hvað ég á að hafa með mér.

Hvaða litur endurspeglar þig best núna? Svartur fyrir haustið og blátt fyrir vorið, síðan alltaf hvítt eða beige með.  Ég nota sterkari liti með í aukahlutum.

Er einhver flík sem þú færð aldrei leið á? Leður buxur og skinnkápa fyrir veturinn .  Polo Ralph Lauren flíkurnar eru síðan alltaf sígildar og eitthvað sem þú átt í mörg ár.

Joa Pels

Hverju myndirðu aldrei klæðast? Er alveg hætt að segjast aldrei munu klæðast þessu eða hinu, hef oft sagt að ég muni  aldrei klæðast t.d víðum gallabuxum en nú eru þær allar víðar sem ég á.  Ætlaði aldrei í strigaskó en nú á ég fulla skápa af þeim. . .   Aldrei að segja aldrei!

Bestu kaupin mín? Skinnkápa og svartar leður buxur frá Utzon – svo elska ég allt frá Polo Ralph Lauren og nýja merkinu okkar sem kemur í haust Nili Lotan.  Fötin eru svo klassísk og litirnir alltaf eitthvað sem hægt er að leika sér með.

Verstu kaupin þín? Æj þau hafa nú verið frekar mörg í gegnum árin en ég reyni að losa mig við þau hratt.

Hvað lærðirðu af þeim kaupum? Ekkert,  maður er alltaf að gera eitthvað af sér. Oft langar manni að fylgja einhverju sem á að vera “must buy”  en svo líður manni bara alls ekki vel í því.  Við eigum bara að klæðast því sem okkur líður vel í, það sama fer alls ekki öllum.

Hvað er stíll fyrir þér? Þægilegt og það sem þér líður vel í, þá ertu sátt við sjálfan þig og geislar.  Það sem við sjáum á tískupöllunum er bara “inspiration”

Jackson Hneppt Peysa

Hvað er á óskalistanum núna? Nýr pels frá Utzon, helst dökk bláann. Við erum að fá svo marga fallega í haust.

Ef þú fengir eina gjöf án verðmiða – hvað yrði fyrir valinu? G-Wagon í hermanna grænum lit!

Þrjár heimasíður, Instagram/tiktok sem þú eltir fyrir innblástur? Pinterest – Ralph Lauren – Nili Lotan