Pistill

Réttu skórnir fyrir veturinn

Réttu skórnir fyrir veturinn

Íslenski veturinn getur verið ansi óútreiknanlegur og því skiptir máli að velja réttu skóna á litla sem stóra fætur. Hvort sem það er snjór, slydda, rigning eða frost þurfa kuldaskórnir að halda fótunum hlýjum og þurrum, vera þægilegir og helst líka flottir!

En hvað þarf eiginlega að hafa í huga þegar kuldaskór eru valdir fyrir börn og unglinga? Hversu stórir eiga þeir að vera og hvaða skór eru vinsælastir í vetur?

Við fengum sérfræðingana hjá Steinar Waage og ECCO í Kringlunni til að deila með okkur sínum bestu ráðum um val á kuldaskóm, vinsælustu týpurnar og hvernig hægt er að láta skóna endast sem lengst.

Hvað er það mikilvægasta sem foreldrar ættu að hafa í huga þegar þeir velja kuldaskó fyrir börnin sín?

Það mikilvægasta er að velja skó sem halda fótunum hlýjum og þurrum, passa vel og veita góðan stuðning. Við þekkjum öll hvernig íslenskt veðurfar er og því þurfa kuldaskór að þola kulda, bleytu og hálku. Foreldrar ættu því að hugsa sérstaklega að vatnsheldni, einangrun og gripi á sóla. Einnig er mikilvægt að skórnir séu þægilegir og ekki of þungir svo börn geti leikið sér og hreyft sig óhindrað. 

Hvað einkennir góða kuldaskó sem henta íslenskum vetri?

Íslenskur vetur getur verið ansi krefjandi fyrir skófatnað þar sem veðrið sveiflast gjarnan á milli frosts, snjókomu, rigningar og slyddu. Góðir kuldaskór þurfa því að vera hlýir, vatnsheldir og með góðu gripi. Vörumerki á við ECCO, Bisgaard, Viking og fleiri sem fást í Steinar Waage og Ecco bjóða upp á fjölbreytt úrval af vetrarskóm sem eru hannaðir með þessar aðstæður í huga. Þar má meðal annars finna skó með vatnsheldum himnum, hlýju fóðri og sterkum sólum sem henta vel fyrir daglegt líf barna á íslandi. 

Hver er munurinn á vatnsheldum og vatnsfráhrindandi skóm og hversu miklu máli skiptir það?

Munurinn er töluverður, sérstaklega þegar kemur að íslenskum vetri. Vatnsfráhrindandi skór þola yfirleitt létta úrkomu og raka að einhverju marki en eru ekki endilega hannaðir til að halda vatni úti í mikilli bleytu eða langvarandi úrkomu. Vatnsheldir skór eru hins vegar hannaðir til að koma í veg fyrir að vatn komist inn í skóinn við þær aðstæður sem þeir eru ætlaðir fyrir. Til dæmis má nefna ECCO skó með GORE-TEX himnu og Viking skó með vatnsheldum himnum. Fyrir börn sem eyða miklum tíma úti í leikskóla, skóla eða frístundum mælum við sérstaklega með vatnsheldum skóm. Þurrir fætur skipta ekki síður máli en hlýtt fóður þegar kemur að því að halda á sér hita. 

Hvernig er best að velja rétta stærð á kuldaskóm? Á að gera ráð fyrir aukaplássi fyrir þykka sokka?

Það er mikilvægt að mæla fætur barnanna reglulega, enda geta þeir stækkað hratt. Almennt er gott að miða við um 1-1,5 cm aukarúmi í kuldaskóm en það getur verið mismunandi eftir gerð og ráðleggingum framleiðanda. Það þarf að vera nægilegt pláss fyrir tærnar og hlýja sokka en skórnir mega heldur ekki vera svo stórir að hællinn renni til eða barnið missi stöðugleika. Of þröngir skór geta valdið því að börnunum verði kalt á fótunum. Við mælum alltaf með að fólk máti skóna með þeim sokkum sem þau nota að jafnaði yfir veturinn. 

Þegar kemur að unglingunum skiptir útlitið oft ekki síður máli en notagildið. Hvaða kuldaskór eru vinsælastir hjá þeim í ár?

Unglingurinn vill gjarnan skó sem passa við þeirra persónulega stíl og hægt er að nota bæði í skólann og við önnur tilefni. Við sjáum að einfaldar, sportlegar týpur og ökklaháir skór í hlutlausum litum höfða vel til þessa aldurshóps. Mörg vilja eflaust vera í strigaskónum allt árið en við reynum að bjóða upp á úrval sem gæti verið ásættanlegt. ECCO býður meðal annars upp á vandaða skó sem sameina nútímalegt útlit, þægindi og hagnýta eiginleika. Fyrir unglinga er sérstaklega mikilvægt að finna skó sem þeim finnst flottir því jafnvel bestu kuldaskór gera lítið gagn heima inni í skáp.

Eru einhverjir kuldaskór sem sameina sérstaklega vel hlýju, þægindi og flott útlit?

Já heldur betur. ECCO leggur mikla áherslu á þægindi og vandaða hönnun á meðan Bisgaard er þekkt fyrir fallega, tímalausa hönnun og vönduð efni. Viking hefur svo sterka áherslu á útivist og skó sem henta vel fyrir virkan leik í fjölbreyttu veðurfari. Það er því hægt að finna mjög ólíkar týpur eftir þörfum hvers barns í ECCO og Steinar Waage þar sem þessi vörumerki fást. 

Eru einhverjar nýjungar eða spennandi týpur sem þið eruð sérstaklega spennt fyrir í ár?

Það sem okkur finnst sérstaklega spennandi er hversu vel nútíma kuldaskór sameina tæknilega eiginleika og fallega hönnun. Foreldrar þurfa síður að velja á milli þess að kaupa hlýja og praktíska skó eða skó sem börnunum finnst flottir. Við erum sérstaklega hrifin af þeim fjölbreytileika sem vörumerkin sem við bjóðum upp á gefa.  Úrvalið í Steinar Waage er mjög gott þegar kemur að barnaskóm og þar finnur fólk vörumerki á við ECCO, Bisgaard, Viking, Sorel ogTommy Hilfiger.

Hvernig er best að hugsa um kuldaskó svo þeir endist sem lengst yfir veturinn?

Góð umhirða skiptir miklu máli fyrir endingu kuldaskóa. Við mælum með að hreinsa reglulega óhreinindi og salt af skónum og nota viðeigandi skóvörur eftir því úr hvaða efni þeir eru. Ef skórnir blotna er best að leyfa þeim að þorna við stofuhita, helst með innlegginu fjarlægðu ef það er hægt. Það á að forðast að setja þá beint á ofna eða aðra sterka hitagjafa þar sem það getur skemmt efni og límingar.  Einnig er gott að nota viðeigandi vatnsvarnarsprey þar sem framleiðandi mælir með því. Rétt umhirða hjálpar til við að viðhalda útliti og eiginleikum og getur lent líftíma skónna verulega.

Hvaða algengu mistök gera foreldrar þegar þeir kaupa vetrarskó fyrir börnin sín?

Algengustu mistökin eru líklega að kaupa kuldaskó of stóra í þeirri von að þeir endist lengur. Það er auðvitað skiljanlegt þar sem börn vaxa hratt en of stórir skór geta verið óþægilegir og haft áhrif á stöðugleika barnsins. Önnur algeng mistók eru að horfa eingöngu á hversu hlýir skórnir eru en gleyma vatnsheldni og öndun. Í þessu skemmtilega íslenska veðri er mikilvægt að skórnir geti bæði haldið bleytu úti og hleypt raka frá fætinum. Síðast en ekki síst er mikilvægt að velja skó eftir notkun. Barn sem eyðir stórum hluta dagsins úti í leik þarf aðra eiginleika en barn sem er mest inni og notar kuldaskóna fyrst og fremst á leiðinni í skólann. Foreldrar þurfa samt ekki að stressa sig yfir þessu því við erum með sérfræðinga í þessum málum í verslunum Steinar Waage og Ecco. Þar getur þú fengið ráðleggingar frá starfsfólki varðandi hvaða skór henta best fyrir barnið. 

Hægt er að skoða fjölbreytt úrval af kuldaskóm fyrir börn og unglinga á skor.is.