Skinny, straight, wide eða flare – gallabuxnatískan er sífellt að breytast og gömul snið eiga það til að rata aftur inn í fataskápinn. Við settumst niður með Fjólu Björk, verslunarstjóra Levi’s í Kringlunni, og fengum hana til að segja okkur hvað er heitast í gallabuxnaheiminum núna, hvernig við finnum hið fullkomna par og hvað er á hennar eigin óskalista fyrir haustið.
Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?
Ég myndi lýsa honum sem klassískum og hversdagslegum en hann fylgir líka tískubylgjunum. Ég elska góðar grunnflíkur og mér finnst gallabuxur vera algjör grunnur í fataskápnum mínum. Flík sem hægt er að nota bæði hversdags og þegar maður vill dressa sig aðeins upp.
Hvað gerir gallabuxur að réttu gallabuxunum?
Það er ekki til eitt „rétt“ snið fyrir alla. Réttu gallabuxurnar eru þær sem henta þínum líkama og þínum stíl og að mínu mati skiptir mestu máli að manni líði vel í þeim.
Hvaða Levi's snið er stjarnan hjá ykkur núna?
Í kvennasniðunum er 501 90’s orðið mjög vinsælt, ásamt bootcut og víðari sniðum eins og XL straight. Í herrasniðum heldur 501 áfram að vera vinsælt en víðari snið eru byrjuð að taka yfir líkt og 555, 568 og 501 Loose.

Hvaða gallabuxnatísku myndir þú helst vilja endurvekja og hvaða tímabil má alveg vera áfram í fortíðinni?
Ég hef verið mjög hrifin af 90’s stílnum og mér finnst hann vera orðinn algjör klassík. Ég elska líka 70’s flare-gallabuxurnar, sérstaklega við fallega hæla. Það sem má hins vegar mín vegna vera áfram í fortíðinni eru skinny-gallabuxurnar.
Manstu eftir fyrstu Levi's-buxunum þínum?
Já, ég man vel eftir mínum fyrstu Levi’s buxum og átti þær í mörg ár. Nú á ég töluvert fleiri pör og langar alltaf í fleiri! Ég elska að eiga nokkur mismunandi snið til að velja úr eftir tilefnum.
Skinny, straight, wide eða flare, hvar erum við stödd í gallabuxnaheiminum?
Straight og wide snið eru mjög vinsæl núna og „relaxed fit“ er greinilega komið til að vera. Það er gaman að sjá að tískan fer alltaf í hringi og margt sem var vinsælt hér áður fyrr er farið að njóta vinsælda á ný.

Hver eru algengustu mistökin sem við gerum þegar við veljum okkur gallabuxur?
Að festast of mikið í ákveðinni stærð eða ákveðnu sniði. Sama stærð getur verið ólík eftir sniðum og efni. Einnig er gott að hafa í huga að gallabuxur gefa oft aðeins eftir með notkun, þannig að það getur verið góð regla að velja þær aðeins þrengri í upphafi, svo lengi sem þær eru ekki óþægilegar.
Hvort velur þú: splunkunýjar fullkomnar gallabuxur eða gamlar, mjúkar og vel slitnar sem hafa fylgt þér árum saman?
Gamlar og mjúkar, ég elska þegar gallabuxur hafa mótast með tímanum og verða enn þægilegri eftir því sem maður notar þær meira. Ég elska hins vegar líka að prófa ný snið, breyta til og fylgja tískunni.
Hvaða þrjár flíkur dreymir þig um að eignast úr versluninni þetta haustið?
Góðar klassískar gallabuxur í dökkbláu, flottan gallajakka í stíl og góða oversized skyrtu. Ég elska að byggja upp haustfataskápinn með góðum grunnflíkum sem hægt er að nota á marga mismunandi vegu.
