Í nýjum pistli sínum fyrir Kringluna veltir Kolbrún Pálína Helgadóttir fyrir sér fataskápnum sem spegli sjálfsmyndarinnar. Hvernig stíllinn okkar breytist með okkur og hvers vegna föt sem eitt sinn voru „við“ þurfa ekki endilega að fylgja okkur áfram.
Hún deilir einföldum og þekktum aðferðum til að hreinsa til í fataskápnum, ráðum til að byggja upp góðan grunn og hugmyndum að litapallettu sem gerir það auðveldara að klæða sig og auðveldara að vera maður sjálfur.
Ertu að klæðast gamalli útgáfunni af þér?
Fataskápurinn okkar segir oft miklu meira um okkur en hvaða föt okkur finnst falleg. Þar inni geta leynst margar útgáfur af okkur sjálfum. Konan sem við vorum fyrir tíu árum. Konan sem vann allt öðruvísi vinnu. Konan sem ætlaði alltaf að komast aftur í uppáhalds gallabuxurnar. Konan sem keypti kjólinn fyrir lífið sem hún hélt að hún ætlaði að lifa. Einhvers staðar þarna inni, er konan sem við erum í dag. Þess vegna finnst mér áhugavert að horfa á tiltekt í fataskápnum sem eitthvað aðeins meira en bara að „losa sig við dót“.
Endurspeglar fataskápurinn þinn manneskjuna sem þú ert í dag?
Líðan þína? Líkamann þinn eins og hann er núna? Þroskann? Daglegt líf? Persónuleikann? Og kannski ekki síst, manneskjuna sem þú ert í dag?
Eða er stór hluti hans ennþá fastur í gamalli útgáfu af þér? Það getur því verið ótrúlega frelsandi að opna skápinn og ákveða að hætta að klæða fortíðinni. Leyfa nýjum smekk, áhuga, hrifningu, reynslu og hugrekki að vera partur af nýjum fataskáp.
Áður en þú rífur allt út úr skápnum skaltu spyrja þig: Ef ég væri að byggja upp fataskáp fyrir mig eins og ég er í dag - myndi ég velja þessa flík aftur?
Ekki: Var hún dýr? Ekki: Ætli ég passi kannski aftur í hana? Ekki: En ef þetta kemur aftur í tísku?
Heldur einfaldlega:
Finnst mér ég vera ég sjálf í henni?

5 leiðir til að hreinsa til í fataskápnum
1. KonMari aðferðin
Hin þekkta KonMari-aðferð byggir meðal annars á því að taka flíkina upp og spyrja hvort hún veki gleði. Persónulega finnst mér áhrifameira að velta því upp hvort mér líði raunverulega vel í flíkinni, hvort hún sé þæginleg og hvort mér líði eins og ég sjálf í henni. Ef svarið er ítrekað nei er kannski kominn tími til að leyfa flíkinni að fara.
2. Fjögurra hrúga aðferðin
Taktu allar flíkurnar út úr skápnum og flokkaðu eftir eftirfarandi flokkum: GEYMA - GEFA/SELJA - LAGA - ÓVISS
Ekki setja „óviss“-hrúguna beint aftur inn í skáp. Settu hana frekar í kassa og skrifaðu dagsetningu á hann. Ef þú hefur ekki hugsað um flíkurnar eða saknað þeirra eftir nokkra mánuði hefurðu líklega fengið svarið sem þú leitaðir að.
3. Snúðu herðatrjánum við
Einföld og snilldar leið til að sjá hvað þú notar í alvörunni. Snúðu öllum herðatrjánum öfugt í byrjun tímabils. Þegar þú notar flík hengirðu hana aftur inn á venjulegan hátt. Eftir 6–12 mánuði sérðu svart á hvítu hvað hefur aldrei verið tekið niður. Þá er spurningin: Af hverju er ég ennþá að geyma þessa flík?
4. Ný flík inn, gömul flík út
Þegar ný flík kemur inn fer ein gömul út. Þetta snýst ekki um að eiga sem minnst heldur að hætta að láta fataskápinn stækka stjórnlaust. Nýjar gallabuxur inn? Þá má gamalt par fara. Nýr jakki sem þú elskar? Kannski er kominn tími á jakkann sem hefur ekki farið út úr húsi í þrjú ár.
5. Prófaðu „Project 333“-hugsunina
Project 333 varð þekkt fyrir þá hugmynd að lifa með mjög takmörkuðu úrvali fata í ákveðinn tíma, klassíska útgáfan miðar við 33 hluti í þrjá mánuði. Þú þarft alls ekki að fara nákvæmlega í 33 flíkur til að læra eitthvað af hugmyndinni. Prófaðu einfaldlega að velja þær flíkur sem þú myndi helst vilja klæðast næstu vikurnar, aftur og aftur.
Þegar uppáhaldsflíkurnar standa eftir verður skyndilega miklu auðveldara að sjá hvað fataskápurinn þinn er að reyna að segja þér.

En hvað á að koma í staðinn?
Markmiðið með því að hreinsa til í fataskápnum er ekki tómur fataskápur. Markmiðið er betri fataskápur. Skápur þar sem fleiri hlutir ganga saman. Þar sem þú þarft ekki að máta sjö boli áður en þú finnur einn sem þér líður vel í. Skápur sem innihalda föt sem hjálpa þér við að tjá þig hver þú ert í dag.
Byrjaðu á grunninum
Góður grunnfataskápur gæti til dæmis innihaldið:
Klassískar gallabuxur sem fara þér núna
Vel sniðnar svartar eða dökkar buxur
Góða hvíta skyrtu
Einfalda bómullarboli
Prjónapeysu eða klassíska jakkapeysu
Klassískan blazer
Rykfrakka eða góða yfirhöfn
Einfalda kjóla sem hægt er að klæða upp og niður
Strigaskó sem ganga við flest
Góð stígvél
Fallegar mokkasínur
Belti, tösku og fylgihluti sem geta breytt einföldu outfitti
En grunnfataskápur þarf alls ekki að vera í hlutlausum litum, hvað þá leiðinlegur.

Grunnurinn þinn á einmitt að endurspegla þig. Ef þú elskar bleikt getur bleikur blazer verið grunnflík. Ef þú notar alltaf munstur eiga þau heima í grunninum þínum. Og ef þú finnur þig alltaf í litríkum strigaskóm er engin ástæða til að kaupa brúnar mokkasínur bara vegna þess að einhver listi á Pinterest sagði þér það.

Finndu litapallettuna þína
Eitt besta ráðið þegar fataskápur er byggður upp á ný er að ákveða ákveðna litapallettu. Ekki til að takmarka þig, heldur til að auka möguleikana.
Veldu til dæmis:
2 - 3 grunnliti Svart, dökkblátt, ljósblátt, hvítt, kremað, brúnt eða grátt.
Síðan:
2 - 4 liti sem eru „þú“ Bleikur, rauður, grænn, appelsínugulur, vínrauður, ljósblár, hvað sem kallar á þig. Þegar litirnir tala saman verða allt í einu miklu fleiri samsetningar mögulegar. Þá hættirðu líka frekar að kaupa þessa einu dásamlegu flík sem passar bókstaflega við ekkert annað sem þú átt.

Ekki kaupa föt fyrir fantasíulífið þitt
Við höfum flestar fallið í þessa gryfju. Fjárfest í dýrum og fínum kjólum fyrir falleg tilefni og haldið svo áfram að brasa við að finna vinnuföt á mánudeginum. Þetta er því án efa eitt af betri ráðunum fyrir fataskápinn. Kauptu fyrst og fremst föt fyrir lífið sem þú lifir.
Ef 80% vikunnar fer í vinnu, hversdagslíf, fundi, kaffihús, göngutúra og skutl, en 60% fataskápsins eru veislukjólar og hælaskór, þá er komið eitthvað ósamræmi. Svo hvernig lítur raunveruleg vika út hjá þér? Byggðu fataskápinn utan um hana. Svo má auðvitað alltaf skilja eftir smá pláss fyrir draumana.
Tiltekt í fataskápunu partur af uppfærslu í sálinni
Það er eitthvað sérstakt við það að taka til í fataskápnum á tímamótum.
Við breytumst. Líkaminn breytist. Starfið breytist. Lífið breytist. Smekkurinn þroskast. Og stundum breytist sjálfsmyndin hraðar en fataskápurinn nær að fylgja okkur. Kannski þarftu því ekki endilega meiri föt. Kannski þarftu fyrst að sjá betur konuna sem stendur fyrir framan skápinn. Og spyrja:
Kannski þarftu bara að spyrja: Hver er ég í dag og hvernig langar mig að klæða mig núna.
