Loð, leður og lúxus með smá nostalgíu!
Í nýjum pistli sínum fyrir Kringluna beinir Kolbrún Pálína Helgadóttir sjónum að einu heitasta tískutrendi vetrarins þar sem mjúkir gervifeldir, feldir, leður og rúskinn leika aðalhlutverkið. Stórir loðkragar, hlýir brúnir tónar og áberandi áferðir setja svip sinn á vetrartískuna.
Hún skoðar hvernig við getum leikið okkur með ólíkar áferðir, blandað saman klassík og karakter og fært smá lúxus inn í hversdagsklæðnaðinn, því stundum þarf ekki meira en loðna tösku eða leðurjakka með attitjúdi til að gera gæfumuninn.
Það er nefnilega heitt að vera heitt!
Það er heitt að vera heitt
Þetta er veturinn sem við klæðum okkur í hlýjuna þar sem loð & leður eiga svo sannarlega stóra sviðið þegar kemur að tískustraumum og stefnum.
Það er eitthvað sérlega heillandi við tísku sem leyfir okkur að vera bæði fallega klædd og vel dúðuð á sama tíma. Ef marka má tískupallana í París, Mílanó og London er veturinn 2026-2027 einmitt þannig. Nú má klæðast mjúku, loðnu, leðri og töluverðri dramatík. Helst öllu í einu!
Loðið er lúxus
Gervifeldir eru mættir aftur af fullum krafti og það með tilþrifum. Stórir loðkragar, mjúkir jakkar, loðnar töskur og yfirhafnir sem nánast biðja um faðmlag. Það má gjarnan vera svolítið extra og ekki er verra ef flíkin minnir örlítið á eitthvað úr fataskápnum frá ömmu, með örlítið nútímalegu tvisti.


Leðrið mýkir línurnar
Leður og rúskinn halda áfram að setja svip sinn á vetrartískuna. Brúnir tónar; súkkulaði, burgundy, koníak og svart, skapa fallega andstæðu við mjúku feldina. Leðurjakki með loðkraga, víðar leðurbuxur við mjúka prjónapeysu eða rúskinnsjakki yfir einfaldan hversdagsklæðnað. Þetta snýst um að blanda saman áferðum og leyfa ólíkum efnum að njóta sín.
Meira er meira
Það besta við þessa tískubylgju er að það þarf ekki að stökkva beint í loðfeld frá toppi til táar. Stundum nægir loðin taska, fallegur kragi eða leðurjakki með karakter til að lyfta heildinni.
Kannski er það einmitt það sem gerir þessa vetrartísku svona skemmtilega. Hún er hlý, notaleg, svolítið nostalgísk og full af persónuleika.
Því þegar íslenski veturinn bankar upp á er fátt betra en tíska sem heldur á okkur hita.


Það er nefnilega heitt að vera heitt! 10 hlutir sem eiga heima í fataskápnum í vetur
Það þarf ekki að skipta út öllum fataskápnum til að taka þátt í tískuleik vetrarins. Stundum er nóg að grafa upp gamla gersemi, fjárfesta í einni góðri flík eða bæta örlitlum karakter við það sem fyrir er.
- Loðhúfan Hlý, mjúk og með hæfilega mikla stæla. Ekki verra ef hún er örlítið dramatísk.
- Gervifeldurinn Því stærri og mýkri, því betra. Fullkominn yfir gallabuxur jafnt sem sparikjólinn.
- Gamli pelsinn hennar ömmu Vintage er alltaf í tísku. Kannski leynist einmitt fjársjóður inni í geymslu sem á skilið nýtt líf.
- Loðkraginn Einfaldasta leiðin til að breyta hversdagsjakka í eitthvað alveg sérstakt. Má líka vera laus og færast á milli yfirhafna.
- Leðurhanskarnir Klassískir, kvenlegir og örlítið dularfullir. Sérstaklega fallegir í súkkulaðibrúnu eða vínrauðu.
- Leðurbuxurnar Hvort sem þær eru víðar, beinar eða aðeins aðsniðnar. Fallegar við grófa prjónapeysu og einfaldan skó.
- Rúskinnstaskan Mjúk áferð, fallegir jarðlitir og þessi afslappaði lúxus sem við elskum.
- Leðurstígvélin Há upp að hné. Tímalaus klassík sem gefur heildinni fallegan stíl.
- Prjónapeysan með karakter Þykk, mjúk og helst aðeins of stór. Falleg mótsögn við glansandi leður.
- Eitthvað loðið og óþarfa dásamlegt Loðin taska, trefill eða jafnvel skraut á töskuna. Því tíska á líka að vera leikur að tjáningu og persónulegum stíl!
Og munið: Það er engin skylda að eiga allt á listanum. Stundum er flottasta flíkin sú sem hefur hangið ónotuð inni í skáp í tuttugu ár og bíður bara eftir rétta augnablikinu.
