Kristín Morthens myndlistamaður er hönnuður Bleiku slæðunnar í ár. Hönnunin kemur frá nýlegu málverki sem hún sýndi á einkasýningu sinni í Þulu fyrr á árinu og ber titilinn: Við höfum tíma. Í verkinu eru tvö stór og björt form sem teygja sig inn í hvort annað.
,,Á tímabilinu sem ég vann sýninguna bað ég dóttur mína Máneyju oft um heilræði eða ráð fyrir vinnustofuna” útskýrir Kristín um verkið ,,þessi samtöl voru nokkurs konar plástrar því henni fannst svo leiðinlegt að geta ekki komið með mér að mála. Einn daginn bað hún mig um að gera hugrakka mynd sem varð að verkinu sem Bleika slæðan byggir á”.

Elskar silkislæður
Kristín elskar silkislæður og er stolt af því hvernig slæðan kemur út, bæði sem fallegt málverk þegar hún liggur opin og þegar hún er brotin saman sem flík á mismunandi vegu.
Snemma í ferlinu fann hún mjög skýrt að þetta væri rétta verkið en útfærslan breyttist töluvert. ,,Fyrst hafði ég ímyndað mér að þetta yrði málverk með hefðbundnum bleikum ramma í kring. En þegar á hólminn var komið talaði Ingibjörg Gréta hjá Gísladóttur sem er framleiðandi slæðunnar, sí og æ um að hornin á henni þyrftu að vera meira spennandi. Svo klúturinn væri flottur þegar brotið væri upp á hann. Það þróaðist yfir í stafræna teikningu ofan á málverkið til að poppa upp litina og smáatriðin” segir Kristín.
Leikur er mikilvægur
Mestan innblástur segir Kristín að hún sæki í náttúruna. Að náttúran sé allt einhvern veginn og við hún. ,,Verkin mín er nátengd inn í landslög þó svo þau sé meira eins og úr draumi. Mikið af minni fagurfræði byggist á efnum, efniskennd, kontrasti og formum, eins og í náttúrunni”.
,,Svo finnst mér leikur mikilvægur, það verður alltaf að vera eitt óvænt augnablik. Eins og til dæmis í málverki er oft eitthvað lítið sem hrindir restinni úr jafnvægi. Í tísku er það einhver fylgihlutur eða partur af flík sem er óvæntur og er ,,ekki í stíl”. Þannig finnst mér hlutir verða sjónrænt áhugaverðir, í gegnum leik”.

Persónulegt verkefni
Bleika slæðan Máney er persónulegt verkefni fyrir myndlistarkonuna en nafnið kemur frá dóttur hennar og verkið er innblásið af ósk hennar um hugrakka mynd.
,,Ég elska litlu stjörnurnar í slæðunni sem ég teiknaði inn á. Þær skína svo skært, eins og ég vona að fólki líði þegar það ber slæðuna. Ég vona að þau sjái fallega slæðu sem þau vilja vefja um sig á margskonar máta. Að þau finni innblásturinn og kraftinn úr bleika litnum og að þeim líði virkilega glæsilegum umvöfðum hugrekki verksins”.
Foreldrar Kristínar hafa öll sigrast á krabbameini og segist hún hafa hugsað til þeirra þegar hún var beðin um að taka að sér þetta verkefni. Ekki bara þeirra vegferð heldur einnig þeim tilfinningum sem hún fór í gegnum sem aðstandandi. Því sé það henni mikill heiður að vinna verkefni eins og Bleiku slæðuna og gefa af sér til Krabbameinsfélagsins en allur ágóði sölunnar rennur til þess.
,,Tilfinningin að fólk um allt land muni ganga með slæðuna er mjög góð. En mér finnst enn fallegra að fólk styrki mikilvægt málefni með kaupum á henni. Ég vona að slæðan Máney muni gefa þeim eitthvað meira og persónulegra eins og hún hefur gefið mér”.

Bleika slæðan Máney hönnuð af Kristínu Morthens er unnin í samstarfi við Gísladóttur, íslenskan silkislæðu framleiðanda sem hefur unnið með listafólki og hönnuðum að silkislæðulínum í rúman áratug. Slæðan er 100% silki og framleidd í Como á Ítalíu. Hún kemur í takmörkuðu magni, fæst á krabb.is og í Mathildi Kringlunni. Allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins.


