Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 11:00 - 18:00

OPNUNARTÍMI
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Skilmálar

Gjafakort skilmálar

Gjafakortið er til greiðslu á vörum og þjónustu hjá verslunum, veitingastöðum og þjónustuaðilum í Kringlunni. Kortin eru einkennd sem Gjafakort Kringlunnar. Þau eru af gerðinni Electron Debet-kort og eru eign Rekstrarfélags Kringlunnar (RK).

Ef rökum studdur grunur leiðir til þess að eigandi kortsins (RK) telur ástæðu til, getur hann og áskilur sér rétt til þess að stöðva notkun kortsins og innkalla það án fyrirvara.

Kortið er einungis unnt að nota með lestri upplýsinga af segulrönd þess á rafrænan hátt. Þess vegna er óheimilt að gefa upp númer kortsins til greiðslu án rafrænnar notkunar þess. Kortið gildir því ekki til greiðslu símleiðis eða bréflega. Kortið er verðmæti, sem skal gæta eins og peninga. Þetta eru handhafakort og týnt kort er tapað fé.

Handhafi kortsins ber ábyrgð á öllum greiðslum sem verða vegna notkunar gjafakortsins. Útgefendur kortsins eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, nátturuhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum.

Útgefendur kortsins eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila. Sérhver ágreiningur eða tjón vegna kaupa á vöru eða þjónustu, sem greidd er með kortinu, er útgefanda þess algerlega óviðkomandi og án ábyrgðar fyrir hann.

Rekstrarfélag Kringlunnar endurgreiðir ekki upphæðir sem eru greiddar inn á gjafakort né kostnað við sendingu og pökkun.

Hægt er að komast að innistæðu gjafakorts með því að hringja í síma 517 9019. Bæði innistæða gjafakorts og greiðslur koma fram á reikningsyfirliti sem birtist á vefsíðu Kringlunnar.