FUNDARHERBERGI
Fundir, veislur og viðburðir hjá Finnsson Bistro í Kringlunni
Stendur eitthvað til? Finnsson Bistro í Kringlunni býður upp á tvö glæsileg rými til leigu fyrir hvers kyns viðburði — fullbúið fundarherbergi og bjartan blómaskála fyrir stærri hópa.

Finnsson Vinnustofan | Prívatherbergið
Glæsilegt fundarherbergi með mikilli lofthæð og sérsmíðuðu 12 manna hringborði með snúningsplötu og þægilegum stólum. Á veggnum er nettengdur skjár sem auðvelt er að tengjast, ásamt hljóðkerfi, stillanlegri lýsingu og þjónustuhnapp.
Hægt er að draga gardínur fyrir til að hafa fullkomið næði og sérinngangur er í boði fyrir þá sem þess óska. Boðið er upp á ljúffengar veitingar — Vinnustofan hentar vel fyrir þá sem vilja funda og njóta um leið góðra veitinga, eða borða saman í góðu næði.
- 12 manns við hringborð
- Nettengdur skjár og hljóðkerfi
- Sérinngangur í boði
- Frí bílastæði

Búbbluskálinn
Búbbluskálinn er sannkallað ævintýrarými: bjartur og fallega skreyttur blómaskáli, aðskilinn frá veitingastaðnum, með góðu næði. Hægt er að taka á móti 35 manns til borðs eða allt að 50 manns í standandi veislum og viðburðum, og borðum er raðað upp eftir því sem hentar hópnum best.
Inn af Búbbluskálanum er 12 manna vinnustofa sem nýtist sem fundarherbergi eða fyrir hlaðborð. Rýmið hentar vel fyrir skírnarveislur, afmæli, fyrirtækjahópa og vinahópa sem vilja gera sér glaðan dag.
- 35 manns í sæti
- Allt að 50 í standandi veislu
- 12 manna vinnustofa innaf
Bókanir og nánari upplýsingar
Rýmin eru leigð út á sanngjörnu verði og leiguverð gengur upp í kaup á veitingum. Sendið fyrirspurn á Finnsson Bistro eða hringið til að bóka.