Fyrir börn á aldrinum 3-9 ára
Í Ævintýralandi geta börn á aldrinum 3-9 ára brugðið á leik og átt ógleymanlegar stundir á meðan fullorðna fólkið verslar í Kringlunni.
Meðal þess sem bíður barnanna í Ævintýralandi má nefna ótrúlega spennandi risakastala með boltalandi,skemmtilegan bát að leika í, barnaeldhús,föndurhorn, skapandi leikföng til að flokka, raða, kubba ofl. Eins má eiga rólega stund í notalegu slökunarherbergi með litlu bókasafni.