Sambíóin

Sambíóin Kringlunni

Kringlan er stolt af því að hýsa eitt fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Bíóið hefur í fjölda ára notið gríðarlegra vinsælda meðal Kringlugesta sem hafa oftar en ekki endað góðan verslunarleiðangur á einum af veitingastöðunum okkar og skellt sér í bíó í kjölfarið.

Kvikmyndahúsið:

Sambíóið Kringlunni var byggt árið 1996 og var fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi sem byggt var inni í verslunarmiðstöð. Fyrirmyndin var sótt til Bandaríkjanna og Bretlands. Kvikmyndahúsið er búið 3 fullkomnum sýningarsölum.

Sambíóin Kringlunni var fyrsta kvikmyndahúsið á Íslandi til að bjóða upp á THX hljóðkerfi í öllum sölum og að auki til að bjóða upp á DIGITAL bíósýningar.

Aðstaða og aðgengi:

Innangengt er úr verslunarmiðstöðinni í kvikmyndahúsið og er það staðsett uppi á 3.hæð. Næg bílastæði eru við Kringluna og það er alltaf hlýtt að standa í röðinni hjá okkur.

Frekari upplýsingar um kvikmyndir og sýningartíma má finna á vefsíðu Sambíóanna.