Nike
Nike Air Zoom Vomero 15 hlaupaskór
SKU: NIKCU1855-001
Nýr Vomero 15 er kominn með uppfærðri dempun og endurbættum sóla með betra gripi. Nike ZoomX foam í miðsóla sem veitir lang besta orkuflutninginn sem Nike bíður uppá. ZoomX foam-ið er það mýksta sem Nike framleiðir og gefur þér mesta orku til baka í frástiginu. Zoom Air loftpúði undir tábergi veitir dempun í hverju niðurstigi og veitir einnig stuðning við frástigið. Loftpúðinn er tvöfalt stærri en í forvera sínum. Hælkappinn er sérstaklega stöðugur og veitir stuðning í lengri hlaupum á misjöfnu undirlagi. Ysta lag sólans er með sérhönnuðu gúmmí efni sem veitir mýkt í hverju skrefi auk þess sem munstrið veitir gott grip. Yfirbyggingin er úr þéttu möskvaefni sem veitir hámarks öndun. Tungan og hælkappinn er vel bólstruð og veita stuðning og þægindi