Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Trúnaðaryfirlýsing

Trúnaðaryfirlýsing

Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar. Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar.

Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Rekstrarfélag Kringlunnar miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Gagnasöfnun

Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru: Nafn, kennitala, netfang, heimilisfang og símanúmer. Rekstrarfélag Kringlunnar notar þessar upplýsingar til að bæta þjónustu til viðskiptavina. Gögnin sem söfnuð eru, eru geymd á vefþjóni Rekstrarfélags Kringlunnar eins lengi og talið er þurfa í samræmi við íslensk lög. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um þá verði fjarlægðar.

Vafrakökur

Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur. Rekstrarfélag Kringlunnar notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.

Rekstrarfélag Kringlunnar notar ýmis greiningartól til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn. Upplýsingum sem er safnað eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki

Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.

Skráðir notendur

Form á vef Rekstrarfélags Kringlunnar

Á vefsíðu Rekstrarfélags Kringlunnar og Ævintýralands er hægt að senda inn fyrirspurn. Í gegnum þau form geta notendur gefið upp nafn og netfang sitt svo hægt sé að fylgja fyrirspurninni eftir.

Hægt er að kaupa gjafakort á vefsíðu Rekstrarfélags Kringlunnar. Greiðandi gefur upp kennitölu, nafn, heimilisfang, póstnúmer, símanúmer og netfang svo hægt sé að ganga frá pöntuninni.  Einnig gefur greiðandi upp kortaupplýsingar við greiðslu, en þær upplýsingar eru ekki vistaðar.

Notendur sem sækja um störf í gegnum vefsíðu Rekstrarfélags Kringlunnar gefa upp fullt nafn, kennitölu, netfang, símanúmer, ástæða umsóknar og gefst kostur á að hala upp ferilskrá og mynd. Notendur sem sækja um starf fyrir Ævintýraland Kringlunnar gefa upplýsingar um fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, póstnúmer, símanúmer, netfang, kyn, hjúskaparstöðu, menntun og starfsþjálfun, fyrri störf og atvinnurekendur, meðmælendur, reykingar, heilsufar, sakavottorð, bílpróf, félagsstörf og áhugamál, reynslu, þjónustulund og hvenær viðkomandi getur hafið störf ásamt því að gefast kostur á að hala upp ferilskrá og mynd.

Þessar skráningar eru geymdar í vefumsjónarkerfinu eins lengi og talið er þurfa í samræmi við íslensk lög. Afrit af erindum eru ekki vistuð í vefumsjónarkerfinu.

Póstlistar og önnur áskrift að efni

Notendur geta skráð sig á póstlista og fengið sent efni frá Rekstrarfélagi Kringlunnar. Netföngin eru vistuð í vefumsjónarkerfinu Mailchimp og eru einungis vistuð í þeim tilgangi að senda út fréttir og upplýsingar frá Rekstrarfélagi Kringlunnar ásamt markpóstum. Neðst í hverjum pósti sem sendur er út til notenda er tengill sem hægt er að smella á til að afskrá sig af póstlistanum.

Vefurinn og þær upplýsingar sem hann tekur á móti eru vistaðar á vefkerfinu Prismic.io og á Íslandi hjá fyrirtækinu Tactica.

Aðrir vefir

Reglur Rekstrarfélags Kringlunnar um öryggi notenda gilda ekki á vefum utan hans. Vefir sem vísað er í af vef Rekstrarfélags Kringlunnar eru utan ábyrgðar Rekstrarfélags Kringlunnar.

Hægt er að hafa samband í gegnum dop@kringlan.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.