Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
1. maí 12:00 - 17:00
fimmtudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Fyrir hvern seldan hlut hér á landi fer 1 evra til Rauða Krossins

Glæsileg ný Múmín vörulína

Í samstarfi við Rauða krossinn hefur Arabia sett á markað nýja Múmín vörulínu sem er ætlað að minna okkur á að lítil góðverk geta oft haft mikil áhrif.

Með samstarfi Arabia og Rauða krossins er vináttu og góðvild fagnað. Útkoman er vörulína sem er myndskreytt upprunalegum teikningum Tove Jansson fyrir Rauða Krossinn.
Í tilefni af samstarfinu er fólk um allan heim hvatt til að sýna hverju öðru góðvild með litlum góðverkum.

Vörulínan er skreytt teikningum sem Tove Jansson gerði fyrir Rauða krossinn í Finnlandi árið 1963. Teikningarnar eru í áberandi og auðþekkjanlegum stíl og sýna m.a. blómstrandi rauð blóm, Míu litlu með kúst, Múmínsnáðann að klifra upp stiga og Snúð sitjandi við varðeld með vinum sínum. Takmarkaðar upplýsingar eru til um bakgrunn teikninganna aðrar en að þær voru upphaflega gerðar til að myndskreyta stundaskrá fyrir börn.

Framlag fyrir hvern seldan hlut

Vörulínan inniheldur tvo bolla, disk og skál. Fyrir hvern seldan hlut hér á landi fer 1 Evra til góðgerðarstarfs Rauða krossins á Íslandi.

Megin skilaboðin eru þau að hvert og eitt okkar getur skipt sköpum við að gera heiminn vinalegri með gjörðum okkar.

Ákveðið hefur verið að sú upphæð sem safnast hér á Íslandi verði nýtt til að styrkja vinaverkefni Rauða krossins, sem snýst meðal annars um að sýna náunganum góðvild. Vinir eru sjálfboðaliðar Rauða krossins sem heimsækja fólk á heimili þess, stofnanir, sambýli, dvalar- og hjúkrunarheimili. Misjafnt er hvað felst í heimsókn en það getur til dæmis verið spjall yfir góðum kaffibolla, gönguferð, ökuferð, upplestur, aðstoð við handavinnu og svo framvegis. Reynt er að mæta þörfum og óskum gestgjafa eins og kostur er. Hlutverk heimsóknavina er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.

Vörurnar má meðal annars finna í Iittala búðinni, Kúnígúnd og Epal Kringlunni.