Hagkaup opnar nýja og stórglæsilega verslun
Laugardaginn 21.október opnaða Hagkaup í Kringlunni sína glæsilegustu verslun á Íslandi. Móttökur voru vægast sagt frábærar og samdóma álit gesta Kringlunnar að stórkoslega hafi tekist til við breytingar á þessari rótgrónu verslun sem verið hefur í Kringlunni frá fyrsta degi hennar en verslunin opnaði um leið og Kringlan opnaði dyr sína fyrir gestum og gangandi þann 13. ágúst árið 1987. Framkvæmdastjóri Hagkaups Gunnar Ingi Sigurðsson var að vonum ánægður með móttökurnar og tók glaður við blómum úr hendi framkvæmdastjóra Kringlunnar , Sigurjóni Erni Þórssyni við þetta tækifæri.