Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 11:00 - 18:00

OPNUNARTÍMI
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Upplýsingar um rafræna vöktun

Myndeftirlitskerfi

Kringlan er vöktuð með öryggismyndavélum.

Reglur og fræðsla Kringlunnar um rafræna vöktun öryggismyndavéla í sameign verslunarmiðstöðvarinnar.

 

Tilgangur vöktunarinnar:

Í öryggis- og eignavörsluskyni.

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er:

Rekstrarfélag Kringlunnar, kennitala: 500400-2930, netfang: kringlan@kringlan.is, sími: 517-9000

Persónuverndarfulltrúi:

Persónuverndarfulltrúi Kringlunnar netfang: personuvernd@kringlan.is

Heimild til vinnslu:

Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Kringlunnar af öryggis- og eignavörslu.

Tegundir persónuupplýsinga:

Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur:

Allt myndefni er aðgengilegt öryggisdeild Kringlunnar sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys og/eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið gert tryggingafélagi aðgengilegt sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10.  gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis:

Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt þegar fyrningartími viðkomandi krafna er liðinn. Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Réttindi einstaklinga:

Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd:

Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.