Nespresso
ROMA
SKU: 6743920
Roma er það Intenso-kaffi sem hefur mesta fágun – líttu á það sem kjarna glæsileikans. Höfugt, flókið, fíngert. Roma er þekkt fyrir grunn sinn sem eru baunir með viðar-, ristunar- og kornkeim sem við léttristum ásamt þvegnum Arabica-baunum úr hálendi í bland við fáguð ilmefni.
UPPRUNI
Náttúrulegar Arabica- og Robusta-baunir frá Brasilíu láta kaffinu þennan djúpa grunn í té. Margslungið eðli Roma fæst með því að bæta við þær þvegnum Arabica-baunum sem vaxa í mikilli hæð í Ixhuatlan í Mexíkó. Þessar Arabica-baunir vaxa í ríkum og frjóum eldfjallajarðvegi og eru meðhöndlaðar af ýtrustu varkárni – bændurnir þurrka þær meira að segja á því sem þeir kalla „upphækkuð þurrkunartrog“ til að verja þær frá rigningunni. Þú getur bragðað útkomuna í bollanum. Daufur ilmur grænna ávaxta og hárrétt sýrustig þessara bauna er það sem gerir Roma að kjarna glæsileikans.
RISTUN
Léttristun og fínmölun viðheldur fíngerðum ilmeinkennum baunanna. Það gerir Roma á sama tíma bragðsterkt og milt.
ILMPRÓFÍLL
Roma er fallega flókið. Það er hárnákvæmt jafnvægi milli styrks ristunarinnar, dýptar viðarkeimsins, korntónanna, fágunar sýrustigsins og glæsileika ilmsins. Roma er hið fullkomna kaffi ef þú ert á höttunum eftir gjöfulu og þokkafullu espresso.