Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Jólamaturinn hjá Evu Laufey

Beef Wellington

Þessi uppskrift er í nýju matreiðslubókinni minni sem var að koma út og mig langar gjarnan að deila uppskriftinni með ykkur. Jólamaturinn minn í öllu sinni veldi. Dúnmjúk og safarík nautalund með sveppafyllingu, vafin í hráskinku og pökkuð inn í gómsætt smjördeig. Steikin stendur algjörlega ein og sér en hún er æðisleg með góðri sósu og ferskum aspas. Algjörlega fullkomin máltíð!

 Sveppamauk:

  • 1 box sveppir 
  • 2 portóbellósveppir 
  • 2 stilkar sellerí 
  • 1 msk smátt söxuð steinselja 
  • ½ laukur
  • 1 dl brauðrasp 
  • 1 msk smjör 
  • 800 g  nautalund (fullhreinsuð)
  • 1 plata smjördeig
  • 10 sneiðar af hráskinku
  • Salt og pipar 
  • Góð ólífuolía 
  • 2 eggjarauður 

Aðferð:

  • Setjið öll hráefnin sem eiga að fara í sveppamaukið fyrir utan brauðrasp í matvinnsluvél og maukið fínt. 
  • Hitið smjör á pönnu og steikið í smá stund, þerrið sveppablönduna svolítið með eldhúspappír og því næst fer brauðraspið saman við.  
  • Setjið fyllinguna í skál og inn í kæli í lágmark hálftíma. 
  • Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið nautalundina á öllum hliðum og brúnið, kryddið til með salti og pipar. 
  • Leggið plastfilmu á borðið sem er um það bil 40x40cm, athugið þið þurfið nokkrar filmur til þess að móta þessa stærð. 
  • Raðið hráskinkunni á plastfilmuna, smyrjið sveppafyllinguna ofan á skinkuna og því næst fer nautalundin yfir og þið hjúpið lundina með því að leggja plastfilmuna varlega yfir nautalundina og rúlla svo plastinu mjög fast utan um hana. 
  • Setjið rúlluna í ísskáp í lágmark klukkustund (ég er oft með hana í 4 – 5klst) 
  • Fletjið smjördeigið út með kefli þannig að smjördeigið passi utan um lundina, sækið lundina í ísskápnum og náið henni úr plastfilmunni. Setjið nautalundina fyrir miðju á smjördeiginu og hjúpið lundina með smjördeiginu. (athugið að samskeytin séu undir rúllunni) 
  • Lokið smjördeiginu í báða enda og setjið á pappírsklædda ofnplötu. 
  • Penslið rúlluna með eggjarauðu og skerið endilega rendur í deigið eða útbúið annað mynstur að vild. 
  • Saltið deigið og setjið inn í ofn við 200°C í 25-30 mínútur. 
  • Leyfið kjötinu að hvíla í lágmark tíu mínútur áður en þið berið það fram. 

Öll hráefni eru keypt í Hagkaup Kringlunni, en þau eru bæði með ferskt kjötborð þar sem auðvelt er að velja góða steik og sælkeraborð þar sem heimsins besta Parmaskinka fæst.

Eva Laufey mælir með...

Vörur

holidays

Kuchenprofi

Kjöthitamælir

Byggt og búið

6.495 kr.

holidays

Kitchen Aid

Matvinnsluvél - 13 bolla, svört

Byggt og búið

47.995 kr.

holidays

Wusthof

Hnífur - Gourmet 20 cm

Byggt og búið

9.995 kr.

holidays

Royal Copenhagen

Fat - 33cm

Kúnígúnd

17.460 kr.

holidays

Forlagið

Í eldhúsi Evu

Hagkaup

6.990 kr.