Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
miðvikudagur 10:00 - 18:30
Sumardaginn fyrsta 12:00 - 17:00
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Hvatningarátak Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana

Ljósmyndasýning í göngugötu

Tólf konur úr íslensku samfélagi leggja átakinu lið og deila persónulegum sögum af leghálsskimun.

Ljósmyndasýningin er hluti af hvatningarátaki Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um mikilvægi skimana fyrir leghálskrabbameini.

Í hópi kvennanna sem styðja átakið með þátttöku sinni í ljósmyndasýningunni eru Eliza Reid, forsetafrú, Brynhildur Guðjónsdóttir, Borgarleikhússtjóri, Þuríður Sigurðardóttir, söngkona og Ebba Katrín Finnsdóttir, leikkona. Sýningin stendur út febrúarmánuð í Kringlunni en hana og sögur allra kvennanna má einnig finna hér á vef Samhæfingarstöðvarinnar. Bolir með merki sýningarinnar eru til sölu á netinu og í völdum verslunum.

„Við hvetjum alla til að skoða sýninguna í Kringlunni eða á vefnum. Um leið hvetjum við konur að panta tíma þegar boð um skimun berst,“ segir Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.

Upplýsingar um skimun fyrir leghálskrabbameini er að finna á vef Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana, á Heilsuveru og hjá Embætti landlæknis.