Afgreiðslutími

Opið í dag 12:00 - 17:00

OPNUNARTÍMI
Sumardaginn fyrsta 12:00 - 17:00
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Hægt er að vinna verðlaun bæði í stigakeppni og happalista.

Kringlukröss - Veglegir afslættir og vinningar

Þátttakan í Kringlukröss er ávallt gríðarleg enda til mikils að vinna bæði hvað varðar fjölda afsláttarmiða og verðlaun.

Kringlukröss er meira en bara leikur fyrir afsláttarmiða. Þeir sem spila Kringlukröss eru sjálfkrafa á happalista og í stigakeppni.

Stigakeppni og Happalisti

Innifalið í leiknum er stigakeppni og þú safnar stigum fyrir hvert borð sem þú spilar. Þó þú sért búin/n að vinna þér inn afsláttarmiða, getur þú alltaf spilað leikborðin aftur og freistað þess að ná fleiri stigum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu sæti í stigakeppni og stendur hún yfir til kl. 20 þann 1. janúar 2024.

Kringlukröss er líka happdrætti. Þeim mun oftar sem þú spilar, því oftar skráist þú á happalistann og getur unnið vegleg verðlaun. Listi yfir vinningshafa happalista verður birtur að leiktímabili loknu en það stendur yfir til 1. janúar 2024.

Þetta eru vinningarnir í stigakeppninni.

The Body shop: 25.000 kr gjafakort

Icewear: 20.000 kr gjafakort

Kringlan: 15.000 kr gjafakort

Klukkan: 10.000 kr gjafakort

Levi´s: 10.000 kr gjafakort

Kúmen 5.000 kr gjafakort

Flying tiger: 5.000 kr gjafakort

Kaffitár: gjafabox

ZO ON: 5.000 kr gjafakort

Hamborgarafabrikkan: Gjafabréf

Kringlan: Bíómiðar fyrir 2

Þetta eru vinningarnir í Happalistanum

Nespresso: Vertuo pop kaffivél

Icewear;20.000 kr gjafakort

Kringlan: 15.000 kr gjafakort

S4S: 10.000 kr gjafakort

Kúnígúnd: Georg Jensen Jólaóróinn 2023 gull

Byggt og búið: Botaneo ræktunarpottur

ZO ON: 5.000 kr gjafakort

Flying tiger 5.000 kr gjafakort

Kaffitár: gjafabox

Kúmen: 5.000 kr gjafakort

Hamborgarafabrikkan: Gjafabréf

Kringlan: Bíómiðar fyrir 2

Góða skemmtun í Kringlukröss 2023

Skilmálar

1. Til þess að taka þátt í keppninni í Kringlukröss og/eða eiga möguleika á því að vinna sér inn afsláttarmiða hjá fyrirtækjum Kringlunnar, þarf viðkomandi leikmaður að skrá sig í leikinn frá kringlan.is með því að skrá netfang og velja lykilorð. Skráning er nauðsynleg til að halda utan um afsláttarmiða og notkun.

2. Með því að skrá sig og spila Kringlukröss verður leikmaður sjálfkrafa þátttakandi í stigakeppni og skráist á Happalista með möguleika á aukavinningum.

3. Aðeins er hægt að nota einn afsláttarmiða per vörukaup. Sýna þarf afsláttarmiða í verslun eða á veitingastað til að fá afslátt og merkja þarf við „Virkja“ áður en kaup eru frágengin.

4. Afsláttarmiðar gilda til 31. desember 2023

5. Afsláttarmiða er einungis hægt að nota hjá viðkomandi fyrirtæki og aðeins í verslun eða veitingastað í Kringlunni.

6. Almennt gildir sú regla að afsláttarmiðar gilda ekki með öðrum afsláttum eða tilboðum, nema slíkt sé sérstaklega tekið fram.

7. Stigakeppni í Kringlukröss gildir frá því að leikurinn fer í loftið 1.desember og stendur yfir til kl. 20 á Nýársdag 2024.

Efstu leikmenn stigalista fáverðlaun. Vinninga ber að vitja fyrir 31.janúar 2023.

8. Happalisti. Dregnir verða út heppnir þátttakendur í leiknum og fá þeir sérstök verðlaun í lok tímabils. Vinninga ber að vitja fyrir 31. janúar 2024

9. Kringlan áskilur sér rétt til að skrá þátttakendur á póstlista Kringlunnar og senda þeim fréttir/tilboð frá Kringlunni. Hægt er að afskrá sig hvenær sem er af póstlista.

10. Kringlan vísar frá sér öllum ábyrgðum, sérstökum eða undirskyldum, í tengslum við þjónustuna sem er veitt „eins og hún birtist“ og veitir enga ábyrgð eða staðhæfingu að neinu leiti varðandi gæði hennar, notagildi í ákveðnum tilgangi, heildstæðni eða nákvæmni.

11. Utanaðkomandi hjálparforrit eða forrit sem breyta virkni leiksins á einhvern hátt eru stranglega bönnuð. Öll notkun slíkra forrita og tilraunir til að svindla eða hafa á einhvern hátt áhrif á gang leiksins, fjölda stiga eða útgefna afsláttarmiða eru stranglega bönnuð. Ef upp kemur grunur um að leikmaður hafi gerst sekur um slíkt athæfi, áskilur Kringlan sér rétt til að vísa honum tafarlaust frá keppni og loka á allan aðgang hans að leiknum og öllu sem honum fylgja.

Góða skemmtun