Flying tiger og Hagkaup gefa verðlaun

Kringlukló fyrir káta krakka föstudag og laugardag

Krökkum er boðið í litla flugbunu í Kringluklónni ofurvinsælu dagana 24.-25.mars , þar sem þau freista gæfunnar og fá flott verðlaun.

Kringlukló er útfærð hugmynd af vinsælu spilatæki þar sem dót, bangsar eða sælgæti er fangað með lítilli járnkló sem stjórnað er með stýripinna. Kringluklóin er frábrugðin að því leiti að börnin sjálf eru klóin. Þau eru sett í öruggt belti, fá hjálm á höfuð og eru síðan látin síga ofan í gryfju sem geymir alls konar verðlaun. Af því sem börnum tekst að fanga, mega þau velja sér einn hlut til að eiga.

Föstudagur 24.mar kl 15 -18:30. Verslunin Flying tiger gefur margvísleg verðlaun og einnig laumar Kringlan nokkrum óvæntum vinningum ílukkupoka.

Laugagardagur 25.mars kl. 13-17. Verslunin Hagkaup gefur verðlaun og eru þau fjölbreytt og skemmtileg fyrir þennan aldur.

Kringluklóin verður staðsett á 1.hæð í miðri göngugötu og er fyrir krakka á aldrinum 4 -12 ára.

Aðgangur í tækið er ókeypis og er stjórnað með númerakerfi til að forðast raðir. Ath að takmarkað framboð miða er í boði en Kringluklóin annar uþb 30 ferðum á klukkustun.

Ekki missa af frábærri upplifun og skemmtun í Kringlu.

HÉR má sjá myndband frá Kringlukónni sl sumar.

Hjartanlega velkomin