Hvar er jólálfurinn í Kringlunni?
Kringlukátur fer á kreik og felur sig á ótrúlegustu stöðum.
Hjálpaðu okkur að finna uppáhalds jólaálfinn okkar hann Kát. Frá 1. - 12.desember felur hann sig einhvers staðar í Kringlunni, í verslun, á veitingastað, í göngugötu eða hvar sem er í húsinu. Hann finnur sér nýjan stað og ný uppátæki á hverjum degi svona eins og jólaálfar gera.
Ef þú finnur hann þá geturðu farið að jólahjartanu okkar á 2.hæð og fyllt út upplýsingar á jólamiða um hvar þú sást hann. Þú setur miðann í hjartað......
.......og þú getur átt von á verðlaunum frá Kringlunni, dregið verður út 13.desember
1. desember Hvar er Kátur?
Vísbending ➞ Hann er mikill áhættufíkill og elskar að klifra!