Fermingardagar 8.-9.feb
Ekkert smá spennandi fermingardagar í Kringlunni um helgina!
Glæsileg tískusýning laugardaginn 8.febrúar kl. 14:00 þar sem bæði fermingarbörn sem og foreldrar fá innblástur af fermingartískunni 2025. Sýningin fer fram á 1.hæð í göngugötu og hefst kl. 14:00
Mollý úr Iceguys (Sandra Barilli) verður kynnir og DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu.
Fjöldi fallegra hugmynda fyrir fermingarveisluna verða um alla Kringlu þar sem fermingarbörn geta fengið ráðgjöf um förðun, fatnað, skraut og annað tengt stóra deginum.
Hlökkum til að sjá ykkur!