Frétt
12. febrúar 2010
Fermingartískusýning lau 13. feb
Vero Moda og Outfitters Nation standa fyrir fermingartískusýningu laugardaginn 13. febrúar kl. 15 og 17.
Nýjustu tískuna fyrir fermingardrengi frá Outfitters nation og fyrir fermingarstúlkur frá Vero moda, sem er nýjung þetta árið.
Einnig verða ýmiss konar kynningar fyrir fermingardaginn á boðstólnum.
Eftirtaldir aðilar munu kynna sína fermingarþjónustu og vörur, en þeir eru: Make Up store, Hárgreiðslustofan Krista/Quest, Aldís Pálsdóttir ljósmyndari og Blómabúðin Kringlunni.
Það verður ekki einungis gaman að koma og taka þátt í fjörinu heldur er líka til mikils að vinna. 10 heppin fermingarbörn detta í lukkupottinn og fá m.a.: 10.000 fataúttekt í Outfitters Nation, Make Up Store ráðgjöf, gjafapakka frá Kristu/Quest, blóm á fermingarborðið frá Blómabúðinni Kringlunni og síðast en ekki síst fermingarljósmyndatöku hjá Aldísi Pálsdóttur.
Dj Brynjar Már þeytir skífum, óvæntur Outfitters Nation glaðningur fyrir gesti og
allir fá Pepsi max eða mountain Dew í boði Ölgerðarinnar. Komdu og njóttu þess sem tíska og allt sem viðkemur fermingunni hefur upp á að bjóða. Það verður mikið um að vera
allan daginn og sýningarnar verða kl 15 og 17.
Vinningshafar dregnir út kl 17.
Tökum vel á móti þér.
OutFitters Nation & Vero Moda • Kringlunni
Til baka