Fréttir eftir mánuðum
24. febrúar 2006
Þrír heppnir hlutu dekurferð til Mývatns fyrir tvo
Dregið hefur verið í Konudagaleik Kringlunnar 2006. Þrír heppnir sem skráðu sig á póstlistann á vefsíðu Kringlunnar á Konudögum hlutu í vinning dekurferðir fyrir tvo með Flugfélagi Íslands í Jarðböðin á Mývatni með gistingu á Sel-Hótel Mývatni. Að auki fengu allir þeir sem skráðu sig á póstlistann ókeypis áskrift að Tískutímariti Kringlunnar sem gefið er út tvisvar á ári.Nánar
16. febrúar 2006
Dekraðu við betri helminginn - Konudagar um helgina
Konudagurinn er á sunnudaginn og af því tilefni eru Konudagar í Kringlunni um helgina. Verslanir Kringlunnar eru hver á fætur annari að fyllast af nýjum vörum. Það ætti því enginn að eiga í vandræðum með að finna góða konudagsgjöf í Kringlunni um helgina. Þeir sem skrá sig á póstlistann á kringlan.is fá ókeypis áskrift að Tískutímariti Kringlunnar en tímaritið er gefið út tvisvar á ári. Allir sem skrá sig á Konudögum geta að auki unnið glæsilega dekurferð með Flugfélagi Íslands í Jarðböðin á Mývatni og gistingu á Sel-Hótel Mývatni.Nánar